Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Þorsteinn Bachmann leikari

Þorsteinn Bachmann, leikari og fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, er gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu. Þátturinn er sá sjötti í 11. seríu Ásgeirs.

Ásgeir segir Þorstein einn af uppáhalds leikurum sínum. Hann hafi fylgst með honum í gegnum árin og í ljós hafi komið, eftir þriggja og hálfs klukkutíma spjall, að þeir séu að mörgu leyti ekki ólíkir.

Í kynningu þáttarins segir Ásgeir að á góma hafi borið mest allt sem Þorsteinn hafi verið að fást við, þeir ræði málin ítarlega og einlægt, nefnir m.a. að Þorsteinn hafi komist að því að betra sé að leggja egóið til hliðar „þegar kemur að því að lifa. Hann segir okkur hvers vegna. Hann kemur með ráð til að geta verið í núinu sem þú hlustandi góður getur nýtt þér. Við tölum milkið um Vonarstræti sem er hans eiginlega fyrsta stóra breik í bíómyndum þar sem hann leikur Móra. Hvernig náði hann karakternum svona vel? Hann segir okkur söguna hvenær hann fékk handritið i hendurnar og lagið sem átti svo að vera í bíómyndinni og kenndi honum að finna karakterinn sinn ennfrekar. Það var merkilega gaman og fróðlegt að heyra.“

Þorsteinn segir Ásgeir einnig frá því þegar hann sagði Jodie Foster frá því hvenær hann ákvað að leggja fyrir sig listina að leika, en þau léku saman í True Detective. „Jodie Foster var hluti af þeirri ákvörðun þegar hann var lítill strákur og þar kemur bíómyndin Taxi Driver við sögu og pabbi hans heitinn. Hvort velur hann ef hann þyrfti að velja? Sviðið eða bíómyndir? Og af hverju? Allt þetta og svo miklu miklu meira í opinskáu og fallegu spjalli sem við áttum saman ég og Þorsteinn,“ segir Ásgeir.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.