Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Hrund Hlöðversdóttir

Hrund Hlöðversdóttir er gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í fyrsta þætti nýrrar raðar í hlaðvarpinu 10 bestu; „skólastýran, rithöfundurinn og þúsundþjalasmiðurinn,“ eins og Ásgeir kynnir hana til leiks.

„Hún leikur, útsetur, skrifar, syngur og dansar og hún kann að spila á harmonikku! Hún hefur skrifað þrjár bækur og þrátt fyrir að fá neitanir frá bókaútgáfum eftir fyrstu bókina sína, gaf hún hana samt út og demdi sér í að skrifa aðra bók sína í þríleik og er sú þriðja að koma út á næstu vikum með útgefanda. Vel gert Hrund!“ segir Ásgeir.

„Hún er að taka kúvendingu á ákveðnum kaflaskilum í lífi hennar sem hún segir vera sitt tækifæri. Hún sagði upp vinnu sinni sem skólastjóri og sér ekki eftir því. Hún flyst erlendis á næstu mánuðum og ætlar að skrifa og láta kosmósinn og vindana sjá um hvert hún fer í kjölfarið. Hrund flutti inn í nýja íbúð og ákvað að hafa ekki sjónvarp á heimilinu sínu. Hún segir það vera frelsandi og tímagefandi.“

Hægt verður að fylgjast með því á samfélagsmiðlum hvað Hrund tekur sér fyrir hendur. Nánar upplýsingar á vefsíðu hennar, www.hrund.net.

Hrund heldur tónleika 4. maí næstkomandi í Laugaborg Eyjafjarðarsveit og kveðst spennt. „Þar tvinnur hún saman bækurnar sínar og tónlist. Til að ljúka sögulokum þar og hefja nýja sögu í kjölfarið erlendis. Takk fyrir gott spjall Hrund og takk fyrir að hlusta!“ segir Ásgeir. 

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.