Fara í efni
Mannlíf

Eva Hrund í 10 bestu hjá Ásgeiri

Eva Hrund Einarsdóttir er gestur í nýjasta 10 bestu hlaðvarpsþsætti Ásgeirs Ólafssonar Lie. Hún tekur við keflinu 1. maí sem framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar.

„Hún á stóran vinahóp sem hittist reglulega og þá syngur hún alltaf sama lagið sem er hennar lag. 10 laga listinn hennar er á víð og dreif í stefnum og segist hún vera alæta á tónlist,“ segir í kynningu. Hann nefnir að Eva Hrund hafi lengi spilaði á fiðlu sem smíðuð var í Póllandi og  henni hafi m.a. tekist að spila með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.  og Kammer. „Nú sest hún í hásætið þar þann 1. maí,“ segir Ásgeir.

„Eva hefur setið í bæjarstjórn sl. 8 ár og ýmsum nefndum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Henni þykir erfitt að kveðja þetta starf og útilokar ekki að hún komi til baka í pólitík í einhverju formi síðar. Spennandi tímar eru framundan. Hún ætlar að að fara að elda meira og taka þá hitann af Árna eiginmanni sínum til tuttugu ára í eldhúsinu,“ segir í kynningunni.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn