Fara í efni
Mannlíf

Áfallastreituröskun og 4 lög en ekki 10!

Jón Gnarr er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þættinum í röðinni 10 bestu. Jón dvelur á Akureyri um þessar mundir en hann leikur Skugga Svein í uppfærslu Leikfélags Akureyrar, sem verður frumsýnd í janúar.

„Einlægur og vel mælandi Jón Gnarr kynnir okkur nýja hlið á sér þegar hann fer með Eddukvæði og syngur þau. Allt aðra hlið en þá sem við þekkjum,“ segir Ásgeir.

Jón hefur ekki mikinn áhuga á tónlist, að sögn þáttastjórnandans. „En það er læknisfræðileg ástæða fyrir því sem hann segir okkur frá. Hann tók samt með sér 4 lög til þess að hafa eitthvað með sér í 10 bestu,“ segir Ásgeir og bendir á að þess vegna heiti þátturinn 4 viðkunnanlegustu lögin að þessu sinni!

Ásgeir vekur athygli á nokkrum atriðum til viðbótar, sem Jón ræðir um í þættinum:

  • Samband Jóns við föður sinn og upplifun hans á móðurmissinum.
  • Jón komst alltof snemma að því að hann langaði ekki að vera borgarstjóri en þurfti að standa vaktina í þrjú ár til viðbótar með þeim afleiðingum að hann fékk áfallastreituröskun.
  • Hann vann á færibandi Volvo og setti hurðar og bretti á 240 og 740 bílinn. Flutti svo í sænskan skóg.
  • Af hverju elskar hann Svíþjóð? Hann er kúltúrlega kántríkall sem elskar þögnina, spagettívestrana og myndirnar sem Arnold lék í. Terminator 2 er besta mynd sem hann hefur séð.
  • Og svo allt hitt. Jón Gnarr er engum líkur. En hér færðu allt aðra sýn á þennan einstaka karakter sem allir elska. Líka 96 ára gamall maður, sem Jón hitti í pottinum í Vesturbæjarlauginni; maður sem tekið hafði í höndina á Adolf Hitler.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.