Fara í efni
Mannlíf

Aðalsteinn segir frá Grænlandsferðunum

Pistill Aðalsteins Árnasonar sem Akureyri.net birti á dögunum vakti gríðarlega athygli. Þar sagði Aðalsteinn frá slysi sem hann lenti í á Grænlandsjökli á sínum tíma og göngu yfir jökulinn á dögunum. Ásgeir Ólafsson Lie ræddi við Aðalstein í nýjasta hlaðvarpsþættinum Viðtalið sem nálgast má hér að neðan.

„Steini kom til okkar og segir okkur alla söguna hvernig hann upplifði för sína á dögunum yfir Grænlandsjökulinn ásamt 7 öðrum. 31 dagur, 500 kílómetrar og allt sem því fylgir. Einnig þá rifjar hann upp slysið á sama jökli 22 árum fyrr. Þar sem hurð skall nærri hælum og aðeins 5 metrar skáru um það hvort hann væri á lífi eða ekki,“ segir Ásgeir í kynningu.

„Hver lifir af 25 metra frjálst fall á íssyllu og stendur uppréttur eftir það og hvað þá heldur... tekur þátt í björgunarleiðangrinum sem var ástæða komu hans á jökulinn í það skipti? Alveg einstök frásögn.

Frábært viðtal við Steina sem er strax farinn að plana hvað sé næst.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn