Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Tinna Jóhannsdóttir

Tinna Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Skógarbaðanna er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta hlaðvarpsþættinum 10 bestu.

„Hún er ættuð frá Húsavík en hefur alla sína tíð búið í Reykjavík þar til nú. En hún segir okkur hvernig það var að stökkva úr risastóru, krefjandi og spennandi starfi í annað enn meira spennandi starf hér á Akureyri,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. „Hún hefur starfað sem yfirmaður og stjórnandi frá nítján ára aldri og grípur allt í kringum sig til að læra af. Hún er í sambúð með Heimi Haraldssyni og búa þau saman á brekkunni. Tinnu líður vel fyrir norðan og þykir það bara fyndið að vera skírð í höfuðið á hundi sem hún þekkir ekki neitt. Hún fer með okkur gegnum sínar förnu leiðir og hvað það var sem leiddi hana hingað norður og auðvitað allt hitt líka.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.