Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Þórmundur Ingi Gunnarsson

Húðflúrarinn Þórmundur Ingi Gunnarsson, Mundi í Vikings tattoo á Akureyri, er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta hlaðvarpsþættinum 10 bestu.

„Mundi hefur átt viðburðarríka ævi og segir okkur allt frá því hvernig var að alast upp á Selfossi, ekki vinamargur og undir miklu einelti. Hann er lesblindur og það bitnaði á skólagöngu hans verulega. Hann átti sinn besta vin, pabba sinn sem lést 2017. Þeir áttu einstakt samband saman,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum.

„Mundi hefur farið víða, allt niður í undirheima Reykjavíkur. Hann hefur náð að byggja sig upp og á nú hana Margréti sína og Ásrúnu dóttur sína sem hann lifir fyrir. Þau reka Víkings tattoo á Akureyri og þar er fjör og mikið að gera alla daga. Tveggja mánaða bið er eftir því að komast í stólinn hjá þessum mikla listamanni sem kemur erfiðri ævi sinni vel frá sér í þessari ótrúlegri frásögn.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.