Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Skapti Hallgrímsson

Nýjasti gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í hlaðvarpsþættinum 10 bestu, er Skapti Hallgrímsson, ritstjóri Akureyri.net.

„Skapti segir okkur sögurnar frá þvi hann starfaði hjá Mogganum í 36 ár og var sagt upp þar og rakti tímalínuna að þessu nýja verkefni sem hófst þann 13. nóvember árið 2020 – www.akureyri.net, miðillinn hans, fagnar tveggja ára afmæli um þessar mundir,“ segir Ásgeir meðal annars í kynningu.

Akureyri.net vekur alltaf athygli á þáttum Ásgeirs og stendur við það samkomulag – þótt ritstjórinn sé viðmælandinn í þetta skipti!

„Hann hefur verið með æskuástinni sinni sem hann kynntist í Dynheimum þegar hann var 17 og hún 16 alla tíð. Saman eiga þau þrjár stelpur og segist hann vera glaður fjölskyldufaðir sem fær að njóta lífsins alla daga,“ segir Ásgeir.

„Með stuttu millibili missti Skapti foreldra sína og segist þakklátur að hafa fengið að vera sonur þeirra. Hann segir fallega frá þvi þegar þeir bræður sátu við dánarbeð pabba þeirra og ákveðið lag spilaðist á sama tíma og hann lést. Við spilum það lag og fáum að heyra söguna. Þú vilt ekki missa af þessu gefandi spjalli við mikinn sómamann. Skapti lofaði svo í lokin að birta þessa frétt á miðli sínum þó það væri hann sem sæti hinum megin við hljóðnemann.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.