Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Sigurður Rúnar Norðfjörð Marinósson

Fyrsti gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýrri seríu hlaðvarpsþáttanna 10 bestu er Sigurður Rúnar Norðfjörð Marinósson – gjarnan kallaður Siggi Rún. 

„Hann tók upp Norðfjörð fyrir ekki svo löngu siðan og segir okkur söguna á bakvið það,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum.

„Hann ólst upp á Akureyri og hefur búið hér alla tíð fyrir utan eitt ár sem hann bjó í Reykjavík. Hann er giftur og á 3 börn og er mikill KISS maður. Líklega einn sá allra harðasti á landinu ásamt nokkrum öðrum. Við töluðum mikið um tónlist og tónlistaruppruna og stefnur. Hann á farsælan feril sem útvarpsmaður og hefur lengi verið þekktur plötusnúður. Hann segir okkur frá nafninu N3 þegar þeir Siggi, Dabbi opg Pétur Guðjóns stofnuðu það fyrirbæri á sínum tíma“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.