Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Óðinn Svan Óðinsson

Óðinn Svan Óðinsson fréttamaður er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta hlaðvarpsþættinum 10 bestu

„Óðinn Svan hefur staðið sig með prýði sem fréttamaður RÚV á Norðurlandi og er að venda kvæði sínu í kross þessa dagana. Hann hefur fært sig um set innan veggja RÚV og segir okkur frá því ásamt öllu öðru hvernig það kom til,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum.

„Hann hefur búið á Ísafirði, í Danmörku, Noregi og Reykjavík en líður alltaf best á Akureyri þar sem hann býr nú. Hvar ólst hann upp? Hver eru áhugamál hans og ferillinn allur til tímans í dag. Frábært spjall við einn allra besta fréttamann landsins að mínu mati,“ segir Ásgeir.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.