Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Hildur Eir Bolladóttir

„Í fjórða þætti í þessari seríu fékk ég til mín kvenskörunginn Hildi Eir,“ segir Ásgeir Ólafsson Lie í kynningu nýjasta þáttar hlaðvarpsins 10 bestu.
 
„Við fórum yfir hennar vegferð og fjölskylduhagi. Hildur hefur tvisvar sinnum greinst með krabbamein. Hvernig sérð þú lífið öðruvísi eftir slíka reynslu? Er munur á því hvernig lífið er metið í dag en var? Vinnan hennar er sóknarprestur hjá Akureyrarkirkju og þar starfar hún á daginn. Hún brennur fyrir það starf, en ætlaði að verða eitthvað allt annað en prestur þegar hún var yngri. Gaman var að heyra söguna hvernig hún ákvað að setja á sig hvíta kragann. Henni þykir gaman að skrifa og hefur hún gefið út ljóðabækur. Svo má búast við meiru þar í komandi framtíð. Sem eru góðar fréttir fyrir þá sem hafa lesið bækurnar hennar. Og alla hina líka sem eiga það eftir. En hvað það verður, verður að koma í ljós,“ segir Ásgeir.

„Það var virkilega gaman að tala við hana um lífið, um dauðann og allt þess á milli. Hildur er merkilega skemmtileg kona.

Smellið hér til að hlusta