Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Heimir Örn Árnason

Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs og fyrrverandi handboltamaður, er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsraðarinnar 10 bestu.

„Heimir Örn kíkti í gott spjall. Við fórum yfir feril hans í handboltanum og ég spurði hann hvers vegna hann væri með æðstu þjálfaragráðuna í handbolta ef hann ætlar ekki að nota hana. Allt opið í þeim efnum, segir Heimir,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum.

„Hann á þrjú börn og tók að sér nýtt hlutverk þegar hann náði oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir síðustu kosningar. Ég hef þekkt Heimi lengi en hann kemur á óvart og það ætti í raun ekki að koma á óvart að hann kemur á óvart. En hann gerði það duglega í þættinum þegar hann ákvað að syngja eitt af sínum uppáhaldslögum í 10 bestu. Sá fyrsti sem gerir það. Það hefur hann aldrei gert áður.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.