Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Björn Grétar hjá Pabbalífinu

Björn Grétar Baldursson er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsraðarinnar 10 bestu.

„Mikið var gaman og gefandi að tala um pabba hlutverkið sem pabbi við annan pabba við Björn Grétar. Hann var kominn á þann vonda stað i lífinu að vilja ekki vera pabbi, og tíma punkturinn þegar honum var boðið að fara breytti lífi hans til þess sem það er í dag. Hann stofnaði Pabbalífið og breytti hugsjón sinni alveg til föðurhlutverksins,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum.

„Hann segir okkur allt frá þvi hvernig hugmyndin varð til og hvort hann hefði grunað hversu stórt verkefni þetta yrði. Þegar Björn Grétar var þriggja ára gamall lifði hann og fjölskyldan hans af snjóflóðið í Súðavík. Hús þeirra fór undir og er þetta alveg hreint mögnuð og átakanleg frásögn. Hann opinberar sig tónlistarlega í viðtalinu, mögulega syngur hann, Björn er alveg til í að segja hlutina eins og þeir eru og það gerir hann. Hann segist ekki vera fullkominn pabbi en hann hefur breytt sér til betri vegar þannig að aðrir feður líta til hans og hlusta þegar hann talar.“

Ásgeir bætir við: „Ég er einn af þeim pöbbum. Björn Grétar er magnaður í alla staði.“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn