Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Bjarni Hafþór Helgason

Bjarni Hafþór Helgason er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie, í nýjasta hlaðvarpsþættinum af 10 bestu.

Ásgeir segir í kynningu á þættinum að Bjarni Hafþór sé mikill sögumaður og þeir sem þekkja Húsvíkinginn vita mætavel að það eru engar ýkjur! „Hann kann að segja sögur og var faðir hans slíkur sögumaður einnig. Ég náði Bjarna þegar hann var staddur á Akureyri með „sögustund“ sem ég kallaði uppistand af tveimur kvöldum af troðfulli húsi gesta sem vart náðu að draga andann vegna hláturs,“ skrifar Ásgeir.

Um Bjarna Hafþór segir hann: „Hann ólst upp á Húsavík en flutti til Akureyrar 17 ára gamall. Hann rekur söguna alla og hann kann svo sannarlega að gera það vel. Hann spilar fyrir okkur sín 10 bestu lög og við kryfjum hvert lag nánast sem hann hefur samið. Það á eftir að koma þér á óvart hvað hann á mörg af þessum lögum sem við heyrum reglulega.

Takk fyrir frábært spjall Bjarni Hafþór og gangi þer vel með barnabókina sem er væntanleg eftir nokkrar vikur!“

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.