Fara í efni
Íþróttir

Hafdís tvöfaldur Íslandsmeistari

Ágústa Edda Björnsdóttir, Íslandsmeistarinn Hafdís Sigurðardóttir og Silja Rúnarsdóttir eftir keppnina í gær.

Hafdís Sigurðardóttir, Hjólreiðafélagi Akureyrar (HFA), varð Íslandsmeistari í götuhjólreiðum í gær, aðeins tveimur dögum eftir að hún fagnaði Íslandsmeistaratitli í tímatöku.

HFA hélt Íslandsmótið í götuhjólreiðum við Mývatn og nágrenni í gær. Keppt var við heldur kaldranalegar aðstæður en hitastigið var litlu yfir frostmarki á köflum þegar fjöldi þátttakenda þeystist um í léttum keppnisfatnaði hring um Mývatn og Laxárvirkjun.

Keppnin virtist ætla að verða nokkuð jöfn framan af en mikill mótvindur var fyrstu 60 km, fremstu keppendur héldu sig saman og skiptust á að kljúfa vindinn en þegar stelpurnar hjóluðu aftur í átt að Mývatni og hófu að klifra upp brekkurnar tók Hafdís Sigurðardóttir sig til og hreinlega stakk hinar af, bætti jafnt og þétt við forskotið og kom í mark 4 mínútum og 36 sekúndum á undan Ágústu Edda Björnsdóttur úr Tindi sem varð önnur. Silja Rúnarsdóttir úr HFA kom í mark skömmu á eftir Ágústu Eddu.

Það sem af er sumri hafa konurnar reynt með sér á fjórum götuhjólamótum og þrívegis í tímatöku og hefur Hafdís sigrað í öll skiptin nema  á einu götuhjólamótanna þar sem liðsfélagi hennar Silja Rúnarsdóttir varð hlutskörpust.

Íslandsmeistari í karlaflokki í gær varð Ingvar Ómarsson úr Breiðabliki en hann sigraði með nokkrum yfirburðum eins og Hafdís. Á eftir  Ingvari kom Hafsteinn Ægir Geirsson og í þriðja sæti varð Akureyringurinn Þorbergur Ingi Jónsson úr HFA.

Mörgum að óvörum skráði sá síðastnefndi, Tobbi ofurhlaupari, sig til leiks í flokki þeirra bestu. Hann gerði sér lítið fyrir og skákaði mörgum af sterkustu götuhjólurum landsins og endaði í þriðja sæti, aðeins örfáum sekúndum á eftir Hafsteini Ægi.

Spennandi verður að sjá hvort framhald verði á keppnisferli Þorbergs í hjólreiðum en það er ljóst hann er ekki síður öflugur hjólari en fjallahlaupari!

Úrslit dags­ins í A-flokk­un­um urðu þessi:

A-flokk­ur kvenna – 98 km

  1. Haf­dís Sig­urðardótt­ir, Hjól­reiðafé­lagi Ak­ur­eyr­ar
  2. Ágústa Edda Björns­dótt­ir, Tind­i
  3. Silja Rún­ars­dótt­ir, Hjól­reiðafé­lagi Ak­ur­eyr­ar

A-flokk­ur karla – 138 km

  1. Ingvar Ómars­son, Breiðabliki
  2. Haf­steinn Ægir Geirs­son, Tind­i
  3. Þor­berg­ur Ingi Jóns­son, Hjól­reiðafé­lagi Ak­ur­eyr­ar

Hafdís Íslandsmeistari í tímatöku

Íslandsmót í tímatöku – MYNDIR 

Hafdís Sigurðardóttir á fleygiferð í keppni gærdagsins.

Þrír efstu í A-flokki karla, frá vinstri: Hafsteinn Ægir Geirsson (2), Ingvar Ómarsson Íslandsmeistari og Þorbergur Ingi Jónsson (3).

Ingvar Ómarsson hjólar í gær. Myndin sýnir vel veðrið sem keppendum var „boðið upp á“.

Þrjár efstu í A-flokki kvenna, frá vinstri: Ágústa Edda Björnsdóttir (2), Hafdís Sigurðardóttir Íslandsmeistari og Silja Rúnarsdóttir (3).