Fara í efni
Íþróttir

Fótbolti og fimm skóga malarhjólreiðar

Fótboltinn rúllar af stað strax á morgun eftir mislangt frí liðanna um verslunarmannahelgina. Þór tekur á móti Breiðabliki á þriðjudag, KA sækir Keflavík heim á miðvikudag og Þór/KA tekur á móti Fram á föstudag. Laugardagurinn verður svo undirlagður malarhjólreiðum þegar Fimm skóga gravel, sem er hluti af Súlur Vertical þríleiknum, fer fram með upphafs- og endapunkt í Kjarnaskógi.

ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST - fótbolti

Markalaust jafntefli gegn hinu Akureyrarliðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu færði liði Þórs eitt stig, en ekki nýja stöðu í töflunni. Þór er áfram í 12. sæti deildarinnar, nú með 12 stig að loknum 16 leikjum. Leikmenn Þórs fengu lítið frí um verslunarmannahelgina enda er leikur á dagskrá strax á morgun, þriðjudag, og það eru Blikar sem koma norður. Breiðablik er í 4. sæti deildarinnar með 29 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 17. umferð
    VÍS-völlurinn (gervigras á Ásnum) kl. 18:30
    Þór - Breiðablik

Breiðablik vann ÍBV 1-0 í síðasta leik sínum, en Þór gerði markalaust jafntefli við KA. 

MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST - fótbolti

Markalaust jafntefli við hitt Akureyrarliðið í Bestu deild karla færði liði KA eitt stig og sæti ofar í deildinni. Raunar má þó segja að stórt tap Stjörnunnar fyrir ÍA hafi þokað KA úr 10. sætinu upp í 9. sætið því KA og Stjarnan eru jöfn að stigum, bæði með 15 stig úr 16 leikjum, en KA með hagstæðari markatölu. KA sækir Keflavík heim í 17. umferðinni á miðvikudag. Keflvíkingar eru í 6. sæti deildarinnar með 19 stig.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 17. umferð
    HS-orku völlurinn í Keflavík kl. 18
    Keflavík - KA

Keflvíkingar fengu á baukinn í síðustu umferð, töpuðu 5-1 fyrir Víkingum á útivelli. KA gerði markalaust jafntefli við Þór eins og áður sagði.

FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST - fótbolti

Enn er baráttan í neðri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu jöfn og spennandi og munar aðeins sex stigum á liðunum í 5. og 10. sætinu. Þór/KA er í 8. sæti með 12 stig að loknum 13 leikjum. Næsti leikur er á heimavelli á föstudag þegar Þór/KA tekur á móti liði Fram, sem er í 6. sætinu með 16 stig.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 15. umferð
    VÍS-völlurinn (gervigras á Ásnum) kl. 18
    Þór/KA - Fram

Þór/KA mátti þola 2-0 tap á útivelli gegn Breiðabliki í síðasta leik, en Fram vann sama dag 4-1 sigur á Val.

LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST - hjólreiðar

Þriðji hlutinn í þríleiknum sem Súlur Vertical stendur fyrir er á dagskrá á laugardag. Þríleikurinn felst í skíðagöngu sem fram fór 29. febrúar og á rætur að rekja til Hermannsgöngunnar, fjallahlaupinu sem fram fór núna um verslunarmannahelgina og svo malarhjólreiðum sem eru á dagskrá laugardaginn 8. ágúst. 

Það er Hjólreiðafélag Akureyrar sem sér um framkvæmd malarhjólreiðahluta þríleiksins, eða Fimm skóga gravel eins og þessi hjóreiðakeppni er nefnd. Upphafsstaður er í Kjarnaskógi, en mismunandi eftir vegalengdum hvert leiðin liggur.

Boðið er upp á þrjár vegalengdir, 130 km, 82 km og 40 km. Á vef HFA má finna allar upplýsingar um hlaupið og leiðarlýsingar fyrir þessar þrjár mismunandi vegalengdir.

Mölin - 40 km - malar- og rafhjól
 
Tæplega 40 km leið sem hefst og endar í Kjarnaskógi. Hjólað er yfir gömlu brýrnar og farið upp Knarrarbergsbrekkuna, niður Leifsstaðabrekkuna og upp Veigastaðaveginn þar sem haldið er upp á topp á Vaðlaheiði. Þar er snúið við og haldið sömu leið til baka í mark.

Mölin er leið fyrir fólk sem leitar að áskorun, vill njóta þess besta sem þekkist í hjólreiðum og reyna á sig upp brekkur sem eru samt ekki of langar. Brautin hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í malarhjólreiðum, hvort sem það leitar að keppni eða áskorun eða bara til að taka þátt í skemmtilegum viðburði og gera sér glaðan dag.

Leiðarlýsing og gpx skrá: https://www.strava.com/routes/3387813945971040632 ​​​​​​​​​​​​​​​​​​

Klöppin - 82 km - malarhjól og skemmtiflokkur

Leiðin er 82 km og liggur yfir Vaðlaheiðina, inn í Vaglaskóg þar sem hjólaður er hringur í gegnum Lundsskóg og Þórðarstaðaskóg að Illugastöðum og þaðan aftur upp og yfir Vaðlaheiðina sömu leið til baka.

Klöppin er fyrir lengra komna, en á færi flestra sem hafa reynslu af hjólreiðum eða öðrum úthaldsíþróttum. Gott klifur í byrjun, en lokakaflinn sér til þess að keppendur koma sveittir og sælir í endamark eftir að hafa sigrast á leiðinni og sjálfum sér.

Boðið er upp á skemmtiflokk (fondo) fyrir þá sem er að leita að alvöru áskorun en eru ekki í keppnishug eða ef t.d. vinahópurinn vill fara saman í skemmtilegt ævintýri. Skemmtiflokkur ræsir skömmu eftir keppnisflokknum. Allir fá tímana sína skráða og fá þátttökuverðlaun.

Leiðarlýsing og gpx skrá: https://www.strava.com/routes/3387813482433481954

Hamarinn - 130 km - malarhjól, fyrir lengra komna

Hamarinn er 130 km að lengd og fer sömu leið og Klöppin nema þegar þátttakendur koma niður Vaðlaheiðina beygja þeir til norðurs og hjóla Skuggabjargarskóg, Dalsmynni og þaðan inn í Vaglaskóg. Leiðin liggur um stóran hluta Fnjóskadals og er krefjandi og tæknileg en ekki of löng. Hamarinn er fyrir þá allra hörðustu sem vilja alvöru áskorun og keppast um hver sé allra mesti hamarinn.

Leiðarlýsing og gpx skrá: https://www.strava.com/routes/3506711214412473764