Fara í efni
Íþróttir

Seinni fjallabrunsdagur og KA í Úlfarsárdal

Seinna fjallabrunsmótið sem Hjólreiðafélag Akureyrar stendur fyrir um helgina fer fram í dag, en mótið er bikarmót í fjallabruni eins og mótið á í gær.

Helstu upplýsingar um mótið:
  • Hjólað verður í „Gömlu Downhill brautinni“ í Hlíðarfjalli. Brautarskoðun verður ekki formleg.
  • Mæting er við Strýtuskála í Hlíðarfjalli.
  • Ræsing er kl. 13:00.
  • Braut lokað kl. 12:30.

Keppt verður í einni braut í Hlíðarfjalli, „Gömlu Downhill brautinni“ eins og hún er nefnd í upplýsingum um keppnina, en mætti allt eins nefna gömlu fjallabrunsbrautina. Í A-flokki eru farnar tvær ferðir í braut, fyrri ferðin er til þess að raða í rásröð fyrir seinni ferðina. Úrslit ráðast af bestu tímum í seinni ferð. Í öðrum flokkum eru hjólaðar tvær ferðir í brautinni og betri ferðin gildir til úrslita. Allir keppendur hafa tímatökuflögu sem þeir hafa leigt sjálfir eða keypt.

Allar upplýsingar um mótið: Fjallabrunshelgi HFA - Hlíðarfjall - 29.-30. ágúst | Netskraning.is

KA á liðin í 3. og 4. sæti eftir

Eins og fram hefur komið í umfjöllun akureyri.net um Bestu deild karla er KA eitt af fjórum liðum sem á ekki möguleika á að færa sig upp í efri hluta deildarinnar fyrir tvískiptingu hennar, en stigin eru jafn dýrmæt fyrir því í harðri baráttu í neðstu sætum deildarinnar. KA á eftir tvo erfiða leiki gegn liðum í efri hluta deildarinnar, Fram og Breiðabliki.

KA sækir Fram heim í 21. umferðinni í dag. Framliðið er í 3. sæti deildarinnar með 43 stig, en KA er með 16 stig og færðist niður í 12. og neðsta sæti í gær þegar Þór sigraði ÍBV í Eyjum. Fram vann Breiðablik 4-3 í síðasta leik, en KA tapaði 3-5 heima fyrir KR.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 21. umferð
    Framvöllurinn (Lambhagavöllurinn í Úlfarsárdal) kl. 17
    Fram - KA

Fyrri leik KA og Fram sem fram fór á Akureyri um miðjan júní lauk með 4-3 sigri Fram.

Í lokaumferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar tekur KA á móti Breiðabliki sunnudaginn 6. september.