Hafdís og Ingvar hlutskörpust á mölinni
Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar (HFA) og Ingvar Ómarsson úr Breiðabliki urðu hlutskörpust í Hamrinum, 130 km malarhjólreiðakeppni sem fram fór í gær þar sem hjólað var úr Kjarnaskógi, yfir Vaðlaheiði, um Fnjóskadal að Illugastöðum og aftur til baka. Hjólreiðakeppnin Fimm skóga gravel er hluti af þríleik í Súlur Vertical, ásamt hlaupi og skíðagöngu.
Hamarinn - 130 km
Hafdís Sigurðardóttir vann Hamarinn annað árið í röð og náði þriðja besta tímanum í heildina í þessari vegalengd, skaut nokkrum körlum ref fyrir rass. Aðeins tvær konur kepptu í þessari vegalengd. Hafdís kom í mark á tímanum 5:11:18 klst., en Sóley Kjerúlf Svansdóttur, einnig úr HFA, kom í mark á tímanum 5:56:35 klst. Ingvar Ómarsson kom langfyrstur í mark í þessari vegalengd, hjólaði 130 kílómetrana á 4:37:16 klst. og var tæpum 26 mínútum á undan næsta manni.
- Kvennaflokkur
1. Hafdís Sigurðardóttir, HFA
2. Sóley Kjerúlf Svansdóttir, HFA - Karlaflokkur
1. Ingvar Ómarsson, Breiðabliki
2. Baldur Þorkelsson, HFR
3. Einar Valur Bjarnason, HFR

Ingvar Ómarsson úr Breiðabliki vann karlaflokkinn og var með besta tímann í lengstu vegalengdinni, Hamrinum, en keppendur þar hjóluðu 130 kílómetra. Mynd: Ármann Hinrik.
Klöppin - 82 km
Harpa Mjöll Hermannsdóttir úr HFA varð fyrst kvenna í mark í Klöppinni, sem er 82 kílómetrar að lengd. Tími Hörpu Mjallar var 3:59:01 klst. Þórdís Rósa Sigurðardóttir kom næst keppenda úr HFA, endaði í 5. sætinu á tímanum 5:08:06 klst.

Harpa Mjöll Hermannsdóttir úr HFA var fyrst kvenna í Klöppinni, 82 km leið. Mynd: Ármann Hinriksson.
Unnsteinn Einar Jónsson var fyrstur keppenda úr röðum HFA í þessari vegalengd, endaði í 7. sætinu á tímanum 4:29:08 klst. Annar Akureyringur, Hlynur Freyr Árnason, sem þó er ekki skráður sem keppandi úr HFA á keppendalistanum, endaði í 10. sætinu á tímanum 4:53.32 klst.
- Kvennaflokkur
1. Harpa Mjöll Hermannsdóttir, HFA
2. Ása Guðný Ásgeirsdóttir, HFR
3. Kristrún Daðadóttir, Breiðabliki - Karlaflokkur
1. Ármann Gylfason, HFR
2. Vilhelm Svansson, Bjarti
3. Arnar Ólafsson, Fyrrverandi Elítunni

Ármann Gylfason úr HFR vann karlaflokkinn í Klöppinni, 82 km. Mynd: Ármann Hinrik.
Mölin - 40 km
Fjórar konur kepptu í þessari vegalengd í hefðbundnum flokki, en einnig var boðið upp á keppni á rafhjólum. Á malarhjólum varð Silja Jóhannesdóttir úr HFA hlutskörpust, hjólaði vegalengdina á 1:40:53 klst. Sara Sigmundsdóttir, einnig frá Akureyri, en ekki skráð undir HFA á keppendalista, endaði í 3. sætinu á tímanum 2:33:51 klst.

Silja Jóhannesdóttir úr HFA, sigurvegari í Mölinni, 40 km. Mynd: Ármann Hinrik.
- Kvennaflokkur
1. Silja Jóhannesdóttir, HFA
2. Anna Lóa Kjerúlf Svansdóttir, Hlíð heilsurækt
3. Sara Sigmundsdóttir - Karlaflokkur
1. Viktor Sindri Viðarsson

Viktor Sindri Viðarsson, sigurvegari í karlaflokki í Mölinni, 40 km. Mynd: Ármann Hinrik.
Aðeins voru þrír þátttakendur í rafhjólaflokki í þessari vegalengd. Svala Ýrr Björnsdóttir fór vegalengdina á 1:51:32 klst. Í karlaflokki varð Árni Þór Árnason sá fyrri af tveimur í mark, hjólaði á tímanum 1:40:16 klst., en Bragi Egilsson kláraði á 1:51:17 klst.
Smellið á flokkana með rauða letrinu til að skoða úrslit í einstökum flokkum, en einnig er hægt að skoða heildaryfirlit allra flokka á timataka.net.
Veðrið lék ekki beinlínis við keppendur og ekki ljósmyndara heldur, en Ármann Hinrik lét það ekki á sig fá og var mættur í Vaðlaheiðina og á fleiri staði og myndaði keppendur í hlaupinu. Hluta af afrakstrinum má sjá í albúminu hér að neðan.