Átta frá HFA á mölinni í Rangárvallasýslu
Hjólreiðafélag Akureyrar átti nokkra keppendur á The Rift hjólreiðakeppninni þar sem hjólað er á malarvegum. Keppnin fór fram um liðna helgi. Hafdís Sigurðardóttir varð í 11. sæti í Pro/Elite flokki kvenna í 200 km vegalengd, Bjarni Jónasson í 8. sæti í 140 km í opnum flokki karla og Harpa Hermannsdóttir 8. sæti í 140 km opnum flokki kvenna.
Árangur einstakra keppenda úr röðum HFA má sjá á listanum hér að neðan og hægt að skoða úrslit í hverjum flokki með því að smella á viðkomandi flokk. Öll úrslit má finna á timataka.net/therift2026.
- 200 km - Pro/Elite flokkur kvenna
11. Hafdís Sigurðardóttir, önnur af Íslendingum.
Tími: 9:06:11 - 200 km - opinn flokkur karla
59. Rögnvaldur Már Helgason
Tími: 09:06:21
140. Ómar Örn Gunnarsson
Tími: 11:04:26 - 140 km - opinn flokkur karla
8. Bjarni Jónasson, þriðji af Íslendingum.
Tími: 5:56:00
43. Unnsteinn Jónsson
Tími: 07:22:26 - 140 km - opinn flokkur kvenna
8. Harpa Hermannsdóttir, þriðja af Íslendingum.
Tími: 6:55:05
20. Þórdís Rósa Sigurðardóttir, níunda af Íslendingum.
Tími: 08:20:57 - 60 km - opinn flokkur kvenna
6. Anna Lilja Sævarsdóttir,
Tími: 03:05:19
Myndirnar með fréttinni er fengnar af ljósmyndavef keppninnar.

Rögnvaldur Már Helgason keppti í 200 km opnum flokki karla. Mynd: KORDIAN / The Rift.

Ómar Örn Gunnarsson keppti í 200 km opnum flokki karla. Mynd: KORDIAN / The Rift.

Bjarni Jónasson keppti í 140 km opnum flokki karla. Mynd: Jón Halldór / The Rift.

Keppendur takast á við alls konar torfærur á leiðinni og stundum er betra að bera hjólið en að hjóla á því. Unnsteinn Jónsson keppti í 140 km opnum flokki karla. Mynd: Jón Halldór / The Rift.

Harpa Hermannsdóttir keppti í opnum flokki kvenna, 140 km vegalengd. Mynd: Jón Halldór / The Rift.

Þórdís Rósa Sigurðardóttir keppti í opnum flokki kvenna, 140 km vegalengd. Mynd: Jón Halldór / The Rift.
Anna Lilja Sævarsdóttir (til vinstri) keppti í 60 km opnum flokki kvenna. Mynd: The Rift.