Stuðningsumhverfi nýsköpunar kynnt
Fulltrúar KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofu, Tækniþróunarsjóðs og Vísindagarða fara saman hringferð um landið í næstu viku til að kynna stuðningsumhverfi nýsköpunar ásamt staðbundnum samstarfsaðilum, m.a. Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Drift á Akureyri.
Viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum, og eru sérstaklega ætlaðir þeim sem eru með viðskipta- eða nýsköpunarhugmyndir – hvort sem er á fyrstu stigum eða tilbúin að sækja á nýja markaði.
- Fundurinn á Akureyri verður miðvikudaginn 21. janúar frá kl. 11.00 til 13.00 hjá DriftEA við Ráðhústorg. Nánari upplýsingar hér: Viðburðurinn á Facebook
Hringferðin, sem ber heitið Nýsköpun og ný tengsl – hringferð um landið, verður dagana 19.–26. janúar og fundað verður á átta stöðum: á Selfossi, Suðurnesjum, Egilsstöðum, Akureyri, Húsavík, Sauðárkróki, Hvanneyri og Ísafirði.
Á hverjum viðburði verða fjögur 15 mínútna erindi, þar sem þátttakendur fá kynningu á því stuðningsumhverfi sem stendur til boða.
- KLAK – Icelandic Startups er meðal fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu samkvæmt Financial Times, segir í tilkynningum um viðburðinn. „KLAK rekur öfluga og metnaðarfulla dagskrá allt árið sem miðar að því að styrkja einstaklinga með hugmyndir og fyrirtæki í vexti með fræðslu, tengslaneti og markvissum stuðningi. Fulltrúi KLAK segir frá þeirri þjónustu sem félagið býður upp á þátttakendum að kostnaðarlausu,“ segir þar.
- Íslandsstofa sinnir markaðssetningu fyrir Ísland og íslenskar útflutningsgreinar og styður íslensk fyrirtæki í sókn á erlenda markaði. Þeirra erindi fjallar um aðgang að alþjóðamörkuðum, erlenda fjármögnun og hvernig á að byggja upp markvisst tengslanet sem nýtist í uppbyggingu fyrirtækja.
- Tækniþróunarsjóður styður fjölbreytt nýsköpunarverkefni með styrkjum frá hugmyndastigi til markaðsvæðingar. Sjóðurinn býður m.a. upp á Fræ, Sprota-, Vöxt- og Markaðsstyrki og styður einnig einkaleyfa- og rannsóknarverkefni.
- Á Vísindagörðum blómstrar samfélag þar sem háskólar, fyrirtæki og rannsóknarstofnanir vinna saman að skapandi lausnum á helstu áskorunum samtímans, segir í tilkynningunni. „Í erindi Vísindagarða verður fjallað um stuðningsumhverfi garðanna með sérstakri áherslu á tækifæri og vaxtarmöguleika í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla. Þá verður kynnt uppbygging á nýju djúptæknisetri, sérhæfðri aðstöðu fyrir vísindalega nýsköpun.“
Að loknum erindum gefst tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun, þar sem gestir geta rætt sín verkefni, fengið ráðgjöf og tengst beint fulltrúum allra stofnananna.
Markmið hringferðarinnar er að auka aðgengi að upplýsingum og stuðningi og byggja ný tengsl milli frumkvöðla, fyrirtækja og aðila í nýsköpunarumhverfinu.