Fara í efni
Fréttir

Þrjú ný fyrirtæki hljóta stuðning frá Drift EA

Frá vinstri: Hildur Arna Magnúsdóttir, Páll Þór Ingvarsson, Alfreð Steinmar Hjaltason, Ísak Már Jóhannesson og Karen Mist Kristjánsdóttir. Myndir: Drift/Sindri Swan

Drift EA hefur valið fyrirtækin Haflind, Terramar og Vaxandi byggð til áframhaldandi stuðnings í Hlunninum. Drift EA hefur nú fjárfest í níu norðlenskum nýsköpunarfyrirtækjum síðan félagið var stofnað árið 2024, auk þess sem sex önnur verkefni hafa fengið vinnuaðstöðu, ráðgjöf og stuðning hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Drift.

Hlunnurinn (e. incubator) er vettvangur innan Driftar EA fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni þar sem teymi fá „heildstætt utanumhald og tækifæri til að þróa verkefni sín áfram með fjölbreyttu aðgengi að ráðgjöf, sérfræðingum, þjálfun, vinnuaðstöðu og tengslaneti. Stuðningurinn er sniðinn að þörfum hvers verkefnis og getur einnig falið í sér fjárfestingu,“ segir í tilkynningunni.

„Frumkvöðlastuðningur Driftar EA er algjör forsenda fyrir árangri og verðmætasköpun á svæðinu. Hann gerir þeim sem eru að koma nýjum hugmyndum á koppinn kleift að einbeita sér að þeim af fullum krafti,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA á Akureyri.

Verkefnin sem valin voru í Hlunninn

Alfreð Steinmar Hjaltason, annar eigenda Terramar.

  • Terramar – Tæknifyrirtæki á Akureyri sem þróar endurnýtingarbúnað fyrir vatn í landeldisstöðvum. Markmiðið er að bæta vatnsgæði í landeldi og lækka stofn- og rekstrarkostnað landeldisfyrirtækja. Frumgerð er nú þegar í rekstri og sýnir fram á umtalsverða hagkvæmniaukningu í endurnýtingu vatns. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Tækniþróunarsjóði og er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands á Hólum, Fiskeldið Haukamýri, Samherja Fiskeldi og fleiri aðila. Að fyrirtækinu standa Alfreð Steinmar Hjaltason og Jón Ólafur Jónsson.

Hildur Arna Magnúsdóttir og Páll Þór Ingvarsson sem standa að Haflind.

  • Haflind – Haflind ehf. vinnur að þróun aðferða til að framleiða lyktar- og bragðlaust lýsi með það að markmiði að auka neyslu á lýsi almennt. Félagið leitar til sjálfbærni og bættrar nýtingu hliðarafurða í þróunarvinnu til að minnka sóun. Að verkefninu standa Páll Þór Ingvarsson og Hildur Arna Magnúsdóttir.

Ísak Már Jóhannesson og Karen Mist Kristjánsdóttir sem standa að Vaxandi byggð ásamt foreldrum Ísaks, Helgu Björg Jónasardóttur og Jóhannesi Má Jóhannessyni.

  • Vaxandi byggð – þróar samfélagsmiðað þorp á Hesjuvöllum ofan Akureyrar með áherslu á sjálfbærni, fjölbreytt húsnæði og sterk tengsl milli íbúa. Markmiðið er að einstaklingar og fjölskyldur geti breytt húsnæðisaðstæðum sínum eftir þörfum án þess að yfirgefa samfélagið sitt. Verkefnið kannar hvernig ólíkar stærðir og gerðir íbúða, sameiginleg aðstaða og uppbygging í áföngum geta stuðlað að hagkvæmara húsnæði, betri nýtingu auðlinda og fleiri tækifærum til búsetu. Að verkefninu standa Ísak Már Jóhannesson, Karen Mist Kristjánsdóttir, Helga Björg Jónasardóttir og Jóhannes Már Jóhannesson.

Mikil gróska í nýsköpun á Norðurlandi

„Það er ánægjulegt að sjá hvað verkefnin eru fjölbreytt og hversu mikil gróska er í nýsköpun á Norðurlandi. Öflug nýsköpun skapar ekki bara störf og verðmæti heldur eykur fjölbreytni í atvinnulífinu, dregur að fólk og nýja þekkingu og skapar um leið jarðveg fyrir nýjar hugmyndir og frekari verðmætasköpun á svæðinu. Við hlökkum til að fylgja þessum þremur verkefnum áfram,“ segir Sesselja.

„Það er eitt að fá góða hugmynd og annað að byggja hana upp í lífvænlegt fyrirtæki. Við vinnum með frumkvöðlunum í þeirri vegferð og hjálpum þeim að komast yfir erfiðustu hjallana”.

Að sögn Sesselju eru til margir góðir og gagnlegir viðskiptahraðlar á Íslandi sem frumkvöðlar geta nýtt sér, oftast stuttir og snarpir og henta ekki alltaf frumkvöðlum af landsbyggðinni, en þegar þeim lýkur getur verið erfitt fyrir frumkvöðla að stíga næstu skref.

„Það getur verið tímafrekt að sækja styrki og finna fjármagn og stundum sitja verkefni lengi föst í því umhverfi. Við sjáum mikinn ávinning af því að fylgja verkefnum eftir yfir lengri tíma. Með Hlunninum viljum við létta undir með frumkvöðlunum og gefa þeim tíma og svigrúm til að þróa verkefnin áfram og veita þeim aðgang að vinnuaðstöðu, fjármagni, ráðgjöf, sérfræðingum, þjálfara og tengslaneti í eitt ár eða lengur, eftir þörfum.“

Úr Áttavita og Slipptöku í Hlunninn

Að sögn Sesselju hefst vegferð frumkvöðla hjá Drift EA oftast í gegnum Áttavitasamtölin. „Þetta eru í rauninni bara ókeypis ráðgjafasamtöl þar sem við fáum að heyra hugmyndina, veitum endurgjöf og ráðleggjum um næstu skref. Þaðan geta teymi sótt um í Slipptökuna sem er líka ókeypis fjórar hagnýtar vinnustofur fyrir verkefni sem eru komin lengra en bara á hugmyndastig. Í Slipptökunni er unnið markvisst að þróun verkefnanna og við fáum jafnframt tækifæri til að kynnast teymunum betur.“

Að lokinni Slipptöku velur stjórn Driftar EA þau verkefni sem komast áfram í Hlunninn. Við valið er einnig leitað álits hjá hópi sérfræðinga og samstarfsaðila Driftar, svokallaða Driftara, sem samanstanda af KPMG, Enor, Eflu, Deloitte, Geimstofunni, COWI, Komplíment og Háskólanum á Akureyri.

„Við völdum 18 teymi í síðustu Slipptöku núna í vor og níu þeirra fengu tækifæri til að kynna verkefnin sín fyrir stjórn og samstarfsaðilum og komast þannig í lokaumferðina í valinu”, segir Sesselja. „Við leggjum mikla áherslu á að fá fleiri sjónarhorn inn í þetta ferli og Driftararnir okkar búa yfir gríðarlega fjölbreyttri sérþekkingu og geta horft á verkefnin frá mismunandi hliðum og komið þannig með dýrmætt innlegg í valið“.

  • Með nýju fjárfestingunum í Haflind og Terramar hefur Drift EA nú fjárfest í níu fyrirtækjum í gegnum Hlunninn. Að auki hafa sex önnur verkefni fengið aðstöðu, ráðgjöf, þjálfun og annan stuðning í gegnum úrræðið, þar á meðal Vaxandi byggð.