Fara í efni
Fréttir

Vilja tengja rótgróin fyrirtæki og frumkvöðla

Sesselja I. Barðdal Reynisdóttir framkvæmdastýra Driftar EA, Sigmar Bjarni Sigurðarson leiðtogi Ignite Nordic á Íslandi, Kristján Þór Júlíusson stjórnarformaður Driftar EA, Maria Olofsson frá Ignite Nordic og Logi Már Einarsson ráðherra.

Drift EA á Akureyri, miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar, hefur formlega sett af stað verkefnið Ignite Nordic á Íslandi, nýtt samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að efla nýsköpun með því að tengja frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila og skapa þannig ný tækifæri til samstarfs, atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar, ekki síst á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Drift.

Af því tilefni heimsótti Logi Einarsson, sem m.a. er ráðherra nýsköpunar, Drift EA og verkefninu var formlega hleypt af stokkunum.

„Markmið verkefnisins er að auka samkeppnishæfni fyrirtækja með því að auðvelda þeim að nýta nýsköpun í rekstri sínum, um leið og frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa lausnir sínar í samstarfi við raunverulega viðskiptavini,“ segir í tilkynningunni. „Verkefnið auðveldar sprotafyrirtækjum að komast í samband við sína fyrstu stærri viðskiptavini og styður fyrirtæki og stofnanir við að finna nýjar lausnir við raunverulegum áskorunum. Með markvissri pörun áskorana og lausna skapast grundvöllur fyrir samstarf sem leiðir til nýsköpunar, vaxtar og aukinnar verðmætasköpunar.“


Haft er eftir Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að Íslendingar búi yfir miklu hugviti og öflugum frumkvöðlum um allt land. „Ein stærsta áskorunin er þó oft að skapa tengslin milli þeirra sem þróa nýjar lausnir og þeirra sem geta nýtt þær. Ignite Nordic er skref í þá átt að stytta þessa leið, efla samstarf og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar. Þannig styrkjum við samkeppnishæfni atvinnulífsins og styðjum við öfluga atvinnuuppbyggingu um land allt,“ segir Logi. 

Verkefnið er leitt af Drift EA á Akureyri í samstarfi við norræna samstarfsaðila, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Háskólafélag Suðurlands (HFSU), KLAK – Icelandic Startups, Sjávarklasann, IceBAN – samtök englafjárfesta á Íslandi og Fjársýsluna.

„Oft eru lausnirnar til staðar en tengingarnar vantar. Með Ignite Nordic á Íslandi viljum við skapa markvissan vettvang þar sem fyrirtæki og frumkvöðlar geta fundið hvort annað og byggt upp samstarf sem leiðir til vaxtar og nýsköpunar,“ segir Sesselja Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA.

Ignite Nordic er fjármagnað af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Drift EA, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE) og Háskólafélagi Suðurlands (HFSU).


  • Drift EA er frumkvöðlasetur á Akureyri sem styður við nýsköpun, atvinnuþróun og uppbyggingu fyrirtækja á Norðurlandi.
  • „Með verkefnum á borð við Ignite Nordic á Íslandi vinnur Drift EA að því að skapa sterkari tengingar milli hugmynda, fjárfestinga og atvinnulífs um allt land,“ segir í tilkynningunni.