Fara í efni
Fréttir

Festi gerist bakhjarl Driftar EA

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA, og Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi.

Festi hefur bæst í hóp fyrirtækja sem styðja við uppbyggingu nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Norðurlandi með því að gerast bakhjarl Driftar EA. Samstarfssamningur þess efnis var undirritaður á dögunum af Ástu S. Fjeldsted, forstjóra Festi, og Sesselju Ingibjörgu Barðdal Reynisdóttur, framkvæmdastýru Driftar.

Í fréttatilkynningu frá Drift EA segir að með samstarfinu vilji Festi styðja við það frumkvöðlasamfélag sem hefur byggst upp í kringum Drift EA og verkefni þess á Norðurlandi. Í stefnu Festi sé lögð áhersla á nýsköpun, sjálfbæran vöxt og samfélagslega ábyrgð og segir fyrirtækið samstarfið falla vel að þeirri sýn.

„Við þekkjum vel hversu miklu öflugt atvinnulíf og nýsköpun skipta fyrir samfélög um allt land. Drift EA hefur á skömmum tíma byggt upp öflugt samfélag frumkvöðla og sprotafyrirtækja á Norðurlandi og við erum stolt af því að styðja við það starf,“ segir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi. Hún segir spennandi að fylgjast með hugmyndum og fyrirtækjum sem verða til og þróast innan samfélagsins og hvernig stuðningur við frumkvöðlastarf geti stuðlað að verðmætasköpun til framtíðar.

Mikilvægt skref fyrir Drift

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA, segir samstarfið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar. „Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Festi í lið með Drift EA. Samstarfið sýnir að öflug fyrirtæki sjá mikilvægi þess að styðja við frumkvöðlastarf og ný fyrirtæki frá fyrstu skrefum,“ segir Sesselja.

Drift EA hefur á undanförnum árum unnið að því að skapa umhverfi fyrir frumkvöðla, sprotafyrirtæki og nýsköpun á Norðurlandi. Sesselja segir stuðning fyrirtækja á borð við Festi skipta máli fyrir þá uppbyggingu. „Við trúum því að nýsköpun og frumkvæði einstaklinga séu lykillinn að öflugu atvinnulífi og sterkari byggðum og hlökkum til að byggja áfram upp þetta umhverfi með öflugum samstarfsaðilum,“ segir hún.

Festi er eignarhaldsfélag sem á fyrirtæki sem veita þjónustu víða um land og segir fyrirtækið stuðninginn við Drift vera lið í því að efla nýsköpun og framtíðarverðmætasköpun utan höfuðborgarsvæðisins.