Einkaleyfaráðgjafi til liðs við Drift EA
Ingólfur Pálsson, evrópskur einkaleyfafulltrúi hjá danska fyrirtækinu Dragsted Partners A/S, hefur gengið til liðs við hóp sérfræðinga Driftar EA á Akureyri, sem nefnist Driftarar. Með aðkomu hans fá frumkvöðlar aukinn aðgang að sérfræðiþekkingu á einkaleyfum og vernd hugverka, sem getur skipt máli í þróun nýrra lausna og uppbyggingu fyrirtækja.
Ingólfur aðstoðar frumkvöðla og fyrirtæki við að meta möguleika á einkaleyfavernd, móta stefnu um vernd uppfinninga og undirbúa og reka einkaleyfisumsóknir á alþjóðavettvangi. Sérþekking hans liggur einkum á sviði vélbúnaðar, iðnaðartækni og tæknilausna, meðal annars á sviði grænna lausna.
Í tilkynningu frá Drift EA kemur fram að áhersla verði lögð á að gera einkaleyfaráðgjöf aðgengilega snemma í þróunarferli verkefna. Þannig geta frumkvöðlar áttað sig á því hvaða hlutar lausna þeirra kunna að vera verndarhæfir og hvernig slík vernd getur stutt við frekari þróun og verðmætasköpun.
Fjölbreyttur hópur sérfræðinga
Drift EA styður við nýsköpun og frumkvöðlastarf á Norðurlandi með fjárfestingum, ráðgjöf, aðstöðu og tengslaneti. Driftarar gegna þar mikilvægu hlutverki með því að leggja verkefnum lið með fagþekkingu sinni, reynslu og tengslum við atvinnulífið.
Í hópnum eru nú KPMG, Enor, Efla, Deloitte, Geimstofan, COWI, Komplíment markaðs- og ráðgjafastofa og Háskólinn á Akureyri, auk Ingólfs.
„Driftararnir búa yfir gríðarlega fjölbreyttri og ólíkri sérþekkingu og geta þau því lagt mat á verkefnin frá mismunandi hliðum. Það hjálpar okkur að greina styrkleika þeirra og þau tækifæri sem felast í áframhaldandi þróun þeirra,“ segir Sesselja Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA.
Driftarar koma meðal annars að mati á verkefnum sem sækjast eftir áframhaldandi stuðningi í Hlunninum, frumkvöðlasetri Driftar EA. Þar fá valin teymi markvissan stuðning við uppbyggingu fyrirtækja sinna, meðal annars í formi fjárfestinga, ráðgjafar, leiðsagnar og aðgangs að sérfræðiþekkingu.
Samstarfið felur einnig í sér að sérfræðingar eru paraðir saman við frumkvöðlateymi og taka reglulega stöðufundi með þeim. Þá miðla Driftarar þekkingu sinni til breiðari hóps með reglulegum fræðslu- og innblásturserindum fyrir frumkvöðla og fyrirtæki í atvinnulífinu.