Fara í efni
Fréttir

Rannsaka samsetningu og uppruna svifryks

Mót Hörgárbrautar, Tryggvabrautar, Glerárgötu og Borgarbrautar. Á þessu svæði hefur mælst töluvert svifryk í gegnum tíðina. Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.

Sýnataka er hafin vegna rannsóknar á efnasamsetningu og uppruna svifryks á Akureyri. Um er að ræða samstarf verkfræðistofunnar Eflu og Akureyrarbæjar, niðurstöður verða bornar saman við samsetningu svifryks í Reykjavík og út frá því verður meðal annars reynt að meta áhrif negldra hjólbarða, mismunandi hálkuvarnarefna og annarra aðgerða. Að auki verða skoðuð tengsl við veðurfar og mismunandi malbikstegundir.

Þetta kemur fram á vefsíðu Akureyrarbæjar.

„Markmiðið er að safna betri og áreiðanlegri upplýsingum en nú liggja fyrir um svifryk og mengun sem af því stafar og greina hvers vegna styrkur svifryks fer yfir heilsuverndarmörk,“ segir á vef bæjarins. Efla, í samvinnu við Akureyrarbæ, fékk síðastliðið vor rannsóknarstyrk frá Vegagerðinni vegna verkefnisins en Norðurorka styður einnig við það fjárhagslega. Sýni verða tekin á Akureyri næstu mánuði. Stefnt er að því að sækja um áframhaldandi styrk vegna verkefnisins og ná þannig að greina gögn sem ná yfir heilt ár.