Garðaúrgangi safnað hjá Orkunni
Alls hafa um 83 tonn af garðaúrgangi safnast í móttökugáma Orkunnar frá því fyrirtækið hóf þessa þjónustu árið 2021. Í fyrra bættist Orkustöðin við Mýrarveg á Akureyri við þær fjórar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt hefur verið að skila garðúrgangi.
Í fréttatilkynningu frá Orkunni segir að þjónustan sé hluti af umhverfisstefnu fyrirtækisins og sé viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Markmiðið sé að auðvelda fólki að koma úrgangi sem fellur til við garðyrkju í rétta farvegi og tryggja að hann nýtist áfram.
Í ár er hægt að losa gras, mold, trjágreinar, blómaafskurð, illgresi og arfa í gám Orkunnar við Mýrarveg, auk stöðvanna á höfuðborgarsvæðinu. Úrgangurinn er síðan fluttur til moltugerðar hjá Sorpu. Gámarnir eru opnir allan sólarhringinn og verða aðgengilegir til 6. september.
Í fréttatilkynningunni segir enn fremur að Orkan hafi einnig boðið upp á tímabundna móttöku á gjafapappír og plasti eftir jól, þannig að efnið komist í viðeigandi endurvinnslu.