Starfsfólk Hölds hefur gróðursett 40.000 tré
Þau tímamót urðu hjá Höldi nýlega að starfsfólk fyrirtækisins gróðursetti tré númer 40.000 í árlegri gróðursetningarferð fyrirtækisins. Gróðursetning hefur verið fastur liður í starfsemi Hölds í þrjá áratugi og hefur starfsfólk víða um land tekið þátt í verkefninu. Frá þessu er sagt í frétt á vef fyrirtækisins.
Hluti af gróðursetningunni hefur í gegnum tíðina verið í Eyjafirði og núna í ár var meðal annars gróðursett í Hlíðarfjalli. Undanfarna þrjá áratugi hefur starfsfólk Hölds gróðursett á mörgum svæðum á landinu, meðal annars í Eyjafirði, á Hólasandi, í Heiðmörk og víðar, auk þátttöku í uppgræðsluverkefni á Reykjanesi.
„Gróðursetning og aðrar landbætur hafa verið í samstarfi við skógræktarfélög, landeigendur og aðra samstarfsaðila í þeim tilgangi að bæta landgæði og stuðla að uppbyggingu vistkerfa,“ segir í frétt Hölds, en jafnframt tekið fram að gróðursetning trjáa sé þó aðeins einn þáttur í umfangsmiklu umhverfis- og loftslagsstarfi fyrirtækisins þar sem félagið hafi starfað eftir vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi í 16 ár og unnið markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar með mælanlegum og skipulögðum hætti.
Dregið úr orkunotkun
Meðal annars hefur árangur náðst með samdrætti í orkunotkun, aukinni flokkun og endurnýtingu þar sem um 90% endurnýtingar- og endurvinnsluhlutfall hefur verið af öllum úrgangi sem fellur til í starfseminni síðustu tvö ár.
Þá hefur Höldur verið virkur þátttakandi í orkuskiptum í samgöngum og er í dag með yfir þúsund rafbíla, auk fjölda tengitvinnbíla til útleigu. Fyrirtækið hefur á þeim vettvangi lagt ríka áherslu á að auðvelda viðskiptavinum að velja samgöngukosti sem geta stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda í samgöngum. Samhliða þessu er rík áhersla á forvarnir í öryggismálum og upplýsingagjöf til erlendra ferðamanna um ábyrga umgengni um íslenska náttúru, meðal annars mikilvægi þess að virða bann við utanvegaakstri og ganga vel um viðkvæm náttúrusvæði.
Umhverfismál eðlilegur hluti af resktrinum
„Við hjá Höldi lítum á samfélagslega ábyrgð og umhverfismál sem eðlilegan hluta af daglegum rekstri. Íslensk náttúra er ein helsta ástæða þess að ferðamenn sækja landið heim og því teljum við mikilvægt að leggja okkar af mörkum til að vernda hana. Trjágróðursetningin er sýnilegt dæmi um það, en hún er jafnframt hluti af víðtækari vegferð sem felur í sér markvissa vinnu að umhverfis- og loftslagsmálum, allt frá gróðursetningu og landbótum til orkuskipta og ábyrgrar nýtingar auðlinda,“ segir Jón Gestur Ólafsson, gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri Hölds.