Heimildin í besta falli óskýr eftir breytingu
Stjórn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hvetur til að hugað verði vel að undirbúningi þeirra breytinga sem verða á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga um næstu áramót. SSNE hefur frá upphafi málsins sent inn umsagnir, bæði á samráðsgátt stjórnvalda og til nefnda Alþingis. Akureyrarbær gerir einnig athugasemdir við breytingar á reglugerðum sem tengjast meðal annars heimild til að fjarlægja lausamuni.
Mögulegur ávinningur í nýju samstarfi
Stjórn SSNE bókaði á fundi nýlega vegna fyrirhugaðrar niðurlagningar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra og tekur meðal annars undir bókun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra sem akureyri.net hefur fjallað um. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka þessa árs, að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir og að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga áður en breytingarnar taka gildi.
Þá er í ályktun stjórnarinnar einnig nefnt að mikilvægt sé að meta hvort ávinningur geti falist í áframhaldandi eða nýju samstarfi sveitarfélaga um ráðgjöf, sérfræðiþjónustu eða önnur verkefni sem falla utan verkefnasviðs ríkisins. SSNE sé góður vettvangur til umræðu um mögulegar sameiginlegar lausnir og samstarf sem stuðlað geti að því að varðveita þekkingu, samræmingu og faglega þjónustu á svæðinu eftir 1. janúar 2027. Þessi mál eru jafnframt komin á dagskrá haustþings SSNE sem haldið verður á Dalvík 9. september.
Óánægja með niðurfellingu heimildar
Fjallað hefur verið um niðurlagningu Heilbirðigseftirlitsins í fréttum á akureyri.net, meðal annars í tengslum við áform um niðurfellingu heimildar í reglugerð 903/2024 sem hefur verið grundvöllur að því að mögulegt sé að fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti að undangenginni viðvörun.
- Heilbrigðisnefnd lögð niður frá áramótum
- Afturför í umhverfis- og hollustuvernd?
- Hvorki einföldun né aukin skilvirkni
Akureyrarbær, Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra og Samband íslenskra sveitarfélaga eru á meðal þeirra sem sent hafa inn í samráðsgátt stjórnvalda svipaðar eða samhljóða athugasemdir við áðurnefnda breytingu.
Í athugasemd Akureyrarbæjar segir meðal annars:
Það er með öllu óásættanlegt að gerðar verði breytingar á reglugerðinni með þessum hætti, þ.e. þannig að það verði í besta falli afar óskýrt hvaða stjórnvald hafi heimild til þess að láta fjarlægja lausamuni, númerslaus bifreiðar, bílflök o.s.frv. að breytingunni undangenginni. Akureyrarbær gerir einnig athugasemdir við til hvaða lögmætra aðgerða sveitarstjórn má grípa til, hvort og hvernig fela megi öðrum aðila verkið og stjórnsýslu þess í heild, s.s. hvernig fara skuli með tilkynningu, andmælarétt, fresti, vörslutöku, förgun og útlagðan kostnað við verkið.
Jafnframt gerir Akureyrarbær athugasemdir við að verkaskipting milli sveitarfélaganna og Umhverfis- og orkustofnunar (UOS) verði óskýr, skýra þurfi hvaða heimildir sveitarfélög hafa til framkvæmdar verkefna og hvernig heimilt verði að bregðast við þar sem umgengni, úrgangur og mengunarvarnir skarast, ábyrgð a´kostnaði og innheimti þurfi að afmarka, ásamt fleiru.
Óskýrar skilgreiningar og heimildir
Samband íslenskra sveitarfélaga eru á meðal þeirra sem sent hafa inn ítarlegar athugasemdir í samráðsgátt stjórnvalda. Um reglugerð 803/2023, um meðhöndlun úrgangs, segir í athugasemd Sambandsins:
Sambandið telur vafa leika á því hvort heimildir sveitarstjórna til að krefjast úrbóta, fyrirskipa hreinsun og annast framkvæmd aðgerða vegna númerslausra bifreiða, bílflaka og annarra lausamuna sé fullnægjandi út frá almennri umfjöllun reglugerðarinnar um hlutverk sveitarfélaga samkvæmt reglugerðinni. Jafnframt telur Sambandið óvíst að reglugerðin veiti næga stoð fyrir sveitarstjórnir til að fela öðrum framkvæmd verkefna á grundvelli samninga og til að innheimta kostnað vegna aðgerða sem ráðist er í á kostnað ábyrgðaraðila.
Um reglugerð 903/2024 um hollustuhætti gerir Sambandið eftirfarandi athugasemd:
Skoða þarf hvort breytingar á reglugerðinni leiði til þess að almenn ákvæði um framkvæmd eftirlits, hlutverk og skyldur heilbrigðisnefnda falli brott án þess að nægilega skýr ákvæði komi í staðinn um sveitarstjórnir vegna þeirra verkefna sem þær eiga áfram að sinna. Sérstaklega þarf að tryggja skýrt samspil reglugerðarinnar við reglur um meðhöndlun úrgangs, meðal annars í málum sem varða óþrifnað og umgengni á lóðum, þar á meðal þegar um er að ræða lausamuni eða aðstæður sem falla ekki með skýrum hætti undir hefðbundna skilgreiningu á úrgangi.
Þvingunarúrræði þurfa að vera skýr
Innsendar athugasemdir Akureyrarbæjar við breytingar á reglugerð 803/2023 og 903/2024 eru í heild svohljóðandi:
Akureyrarbær gerir athugasemd við að 3. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 903/2024 falli brott án þess að í staðinn komi skýr tenging við 14. gr. reglugerðar nr. 803/2023. Það er með öllu óásættanlegt að gerðar verði breytingar á reglugerðinni með þessum hætti, þ.e. þannig að það verði í besta falli afar óskýrt hvaða stjórnvald hafi heimild til þess að láta fjarlægja lausamuni, númerslaus bifreiðar, bílflök o.s.frv. að breytingunni undangenginni. Akureyrarbær gerir einnig athugasemdir við til hvaða lögmætra aðgerða sveitarstjórn má grípa til, hvort og hvernig fela megi öðrum aðila verkið og stjórnsýslu þess í heild, s.s. hvernig fara skuli með tilkynningu, andmælarétt, fresti, vörslutöku, förgun og útlagðan kostnað við verkið.
Akureyrarbær gerir athugasemdir við að ekki liggi nægilega skýrt fyrir hver verkaskipting milli sveitarfélaganna og Umhverfis- og orkustofnunnar eigi að vera. Þannig þarf að skýra miklu betur hvaða heimildir sveitarfélög hafa til framkvæmdar verkefna og kveða þarf á um samvinnu sveitarfélaga og framsal verkefna innan lögbundinna marka. Einnig þarf að vera skýrt hvernig heimilt er að bregðast við þar sem umgengni, úrgangur og mengunarvarnir skarast, ábyrgð á kostnaði og innheimtu verði afmörkuð og að fyrir gildistöku liggi fyrir leiðbeiningar og samræmt verklag sem styðji við framkvæmd hins nýja kerfis.
Miklu skiptir að þvingunarúrræði eins og stefnt er að séu skýr og auðskilin og án allra vankanta, sérstaklega þegar um er að ræða úrræði sem fela í sér afskipti af eignarrétti einstaklinga. Þannig þarf lagastoð að vera skýr hvaða háttsemi getur leitt til íhlutunar stjórnvalda. Reglur þurfa að taka mið að meðalhófi en samt vera skýrar um úrbætur, fresti og úrræði. Skýrari reglur leiða jafnframt til samræmdra aðferða milli sveitarfélaga sem stuðlar að jafnræði. Að mati Akureyrarbæjar eru reglugerðardrögin í núverandi mynd óviðunandi og til þess fallinn að draga úr heimildum sveitarfélaga (sem áður tilheyrðu heilbrigðiseftirlit) til að grípa til aðgerða á grundvelli laga um hollustuhætti þegar þörf krefur hverji sinni innan sinnar lögsögu
Bókun stjórnar SSNE:
Stjórn SSNE tekur undir bókanir Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra vegna fyrirhugaðs flutnings verkefna heilbrigðiseftirlits til ríkisins frá og með 1. janúar 2027.
Stjórnin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka árs 2026, að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir og að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga áður en breytingarnar taka gildi.
Stjórn SSNE telur mikilvægt sveitarfélög á starfssvæðinu hefji undirbúning að þeim verkefnum sem áfram verða á þeirra ábyrgð, meðal annars með kortlagningu samþykkta, stjórnsýsluverkefna og þeirrar sérþekkingar sem byggst hefur upp innan HNE. Þótt lögbundið eftirlit flytjist til ríkisins munu sveitarfélög áfram bera ríkar skyldur og ábyrgð á sviðum sem tengjast skipulagsmálum, umhverfisvernd, vatnsvernd, fráveitumálum, úrgangsmálum, mengunarvörnum, dýrahaldi og öðrum verkefnum þar sem þekking og reynsla starfsfólks HNE hafa verið mikilvægur þáttur í ákvarðanatöku og þjónustu við sveitarfélögin. Jafnframt er mikilvægt að meta hvort ávinningur geti falist í áframhaldandi eða nýju samstarfi sveitarfélaga um ráðgjöf, sérfræðiþjónustu eða önnur verkefni sem falla utan verkefnasviðs ríkisins.
SSNE er vettvangur samráðs sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og því góður vettvangur til umræðu um mögulegar sameiginlegar lausnir og samstarf sem stuðlað geti að því að varðveita þekkingu, samræmingu og faglega þjónustu á svæðinu eftir 1. janúar 2027 og hefur að því marki breytt dagskrá haustþings SSNE 2026 sem haldið verður á Dalvík þann 9. september til að hefja umræðu um framtíðar skipan þeirra verkefna sem áfram verða á ábyrgð sveitarfélaga.