Páll segir hækkanir auglýstar sem lækkanir
Páll Kristjánsson framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri gagnrýnir bæjaryfirvöld fyrir boðaða lækkun álagningarhlutfalls fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði og segir að í raun sé um hækkun að ræða. Þetta kemur fram í grein Páls sem akureyri.net birti í morgun.
Páll segir í greininni: „Þau gleðitíðindi hafa borist frá bæjaryfirvöldum á Akureyri að til standi að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts/fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði úr 1,61% í 1,59%,“ skrifar Páll og bætir við:
- Árið 2026 greiddi félagið liðlega 34,8 milljónir króna í fasteignagjöld og fasteignatengda skatta.
- Árið 2027 mun félagið greiða tæplega 36,3 milljón króna í fasteignagjöld og fasteignatengda skatta
„Félagið fær sem sagt að njóta þeirra forréttinda,“ segir Páll, „að greiða liðlega 1,4 milljónum króna meira á næsta ári í boði bæjaryfirvalda sem kynna lækkun á álagningarhlutfalli fasteignaskatts.“
„Óneitanlega þægileg verkaskipting“
Páll segir að hækkanir hafi verið „linnulausar og frá árinu 2021 til ársins 2027 munu fasteignatengd gjöld félagsins hafa hækkað um tæplega 58%.“
Hann minnir á að fasteignatengd gjöld fyrirtækja samanstandi ekki eingöngu af fasteignaskatti. „Þar bætast við lóðaleiga, fráveitugjöld, vatnsgjöld og tilheyrandi fastagjöld. Á aðra gjaldaliði en fasteignagjöld eru boðaðar hækkanir. Við þetta bætist 7,1% hækkun fasteignamats atvinnuhúsnæðis á Akureyri milli áranna 2026 og 2027.“
Páll segir erfitt að sjá hvaða tilgangi boðuð lækkun þjóni öðrum en þeim að „skapa jákvæðar fyrirsagnir fyrir forsvarsfólk bæjarins og dreifa athyglinni frá stórfelldum hækkunum fasteignatengdra gjalda á fyrirtæki á Akureyri undanfarin ár. Bæjaryfirvöld fá að tala um lækkanir á samkomustöðum almennings á meðan fyrirtækin fá að greiða hækkanirnar. Það er óneitanlega þægileg verkaskipting fyrir bæjaryfirvöld.“
Grein Páls Kristjánssonar: Þegar hækkanir eru auglýstar sem lækkanir