Fara í efni
Fréttir

Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði lækkar

Mynd: Þorgeir Baldursson

Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar boðar lækkun fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði. Sorphirðugjöld verða óbreytt og aðrar gjaldskrár hækka almennt um 2,5%. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árin 2027 til 2031 fór fram í bæjarstjórn sl. þriðjudag.

Þetta er fyrsta heildstæða fjárhagsáætlun nýrrar bæjarstjórnar og þar með nýs meirihluta Framsóknarflokks, L-lista og Sjálfstæðisflokks.

Gert er ráð fyrir að hagnaður af rekstrinum á næsta ári verði um 1,5 milljarðar króna. Tekjur verði samtals 44 milljarðar, þar af útsvarstekjur 18,4 milljarðar og fasteignaskattar 4,2 milljarðar. Tekjur frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á næsta ári eru áætlaðar 7,4 milljarðar og aðrar tekjur samtals 13,6 milljarðar.

Mest í fræðslu- og uppeldismál

Heildarútgjöldin eru áætluð 40,9 milljarðar. Mestu er varið í fræðslu- og uppeldismál, 14,8 milljörðum eða 43,8% af útgjöldum. Til grunnskóla er varið 8,7 milljörðum, 4,9 milljarðar eru vegna leikskóla og ríflega milljarður vegna annarrar fræðslustarfsemi, þ.m.t. skólaþjónustu og tónlistarskóla.

Til velferðarmála er varið samtals 7,9 milljörðum króna og vegur þar þyngst þjónusta við fatlað fólk, 5,5 milljarðar króna.


Áherslur í málefnasamningi birtast með skýrum hætti í áætluninni

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri hafði framsögu fyrir fjárhagsáætluninni. Hún sagðist í upphafi vilja setja hana í pólitískt samhengi.

„Nú liggur fyrsta heildstæða fjárhags- og framkvæmdaáætlun þessa meirihluta fyrir. Hún verður því ekki aðeins metin út frá einstökum tölum. Spurningin er líka hvort þau loforð og þær áherslur sem við settum fram í vor séu farin að birtast í ákvörðunum okkar og forgangsröðun. Svarið er skýrt. Áherslur málefnasamningsins birtast með afgerandi hætti í fjárhags- og framkvæmdaáætluninni. Hér erum við að færa fyrirheit yfir í fjármögnuð verkefni og raunverulegar ákvarðanir um gjöld heimilanna, rekstur sveitarfélagsins, atvinnulíf, velferð og uppbyggingu Akureyrar.“

Fasteignaskattar vegna atvinnuhúsnæðis lækka um 25 milljónir

Útsvarsprósentan verður óbreytt, 14,97%, sem er hámarksútsvarsprósenta sem sveitarfélögum er heimilt að leggja á íbúa sína.

Álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði verður óbreytt eða 0,28% en hún var lækkuð á þessu ári úr 0,31% í 0,28%. Berglind boðaði tillögu um að lækka álagningarprósentuna á atvinnuhúsnæði úr 1,61% í 1,59%.

„Þannig lækkar álagður skattur um 25 milljónir króna á atvinnuhúsnæði á næsta ári. Gjaldskrár sorphirðugjalda eru óbreyttar á milli ára en aðrar gjaldskrár hækka almennt um 2,5%. Með þessu er Akureyrarbær að leggja sitt að mörkum til að halda verðlagi stöðugu. Þetta er meðvituð pólitísk ákvörðun og hluti af þeirri ábyrgð sem sveitarfélagið þarf að axla í núverandi efnahagsumhverfi.“

Stjórnsýsluúttekt á rekstri bæjarins

Ráðgert er að síðari umræða fari fram um næstu mánaðamót og verði áætlunin þá formlega samþykkt.

Berglind Ósk skýrði frá því að bærinn hefði fengið HLH Ráðgjöf til að annast stjórnsýsluúttekt á rekstri bæjarins.

Hún segist binda miklar vonir við úttektina. Allir stjórnendur og starfsfólk stjórnsýslunnar muni koma að úttektinni og fá tækifæri til að segja sína skoðun á því hvar raunverulega sé hægt að gera betur í rekstrinum.

HLH hefur áratuga reynslu af ráðgjöf vegna stjórnskipulags, fjármála og reksturs sveitarfélaga og hefur unnið slíkar úttektir fyrir fjölmörg önnur sveitarfélög í landinu.