Fara í efni
Fréttir

Erlend verkefni eru Slippnum mikilvæg

Kanadíski rækjufrystitogaranum Northern Osprey III. Slippurinn Akureyri hannaði, smíðaði og setti upp bolfiskvinnslulínu um borð í togarann. Mynd: Þorgeir Baldursson

Slippurinn Akureyri hefur lokið við eitt stærsta verkefni félagsins á þessu ári. Verkefnið fólst í hönnun, smíði og uppsetningu bolfiskvinnslulínu um borð í kanadíska rækjufrystitogaranum Northern Osprey III. Samhliða framkvæmdinni sinnti Slippurinn einnig margvíslegri skipaþjónustu um borð í skipinu.

Magnús Blöndal, sviðsstjóri hjá Slippnum DNG, segir verkefnið enn eitt dæmið um mikilvægi erlendra verkefna í starfsemi Slippsins og þá sérþekkingu og öflugu þjónustu sem félagið býður alþjóðlegum sjávarútvegsfyrirtækjum. Verkefni af þessari stærðargráðu undirstrika jafnframt samkeppnishæfni Slippsins DNG á alþjóðlegum markaði.

Hluti áhafnar Northern Osprey III ásamt nokkrum starfsmönnum Slippsins DNG áður en skipið hélt heim á leið. Mynd: Axel Þórhallsson

Slippurinn DNG þekktur fyrir góðar lausnir og öfluga þjónustu

„Útgerðin leitaði í upphafi til nokkurra erlendra fyrirtækja vegna breytinganna og því var ekki sjálfgefið að okkur tækist að tryggja okkur verkefnið. Slippurinn DNG hefur hins vegar áður sinnt umfangsmiklum verkefnum fyrir kanadískar útgerðir. Þau verkefni hafa aukið sýnileika okkar og styrkt orðspor fyrirtækisins meðal útgerðarfyrirtækja þar í landi. Verkefnið var því að vissu leyti framhald af þeim tengslum sem Slippurinn DNG hefur byggt upp og ræktað í Kanada um árabil,“ segir Magnús Blöndal.

Mikilvægt að prófa búnaðinn í íslenskri lögsögu

Með nýja búnaðinum verður Northern Osprey III gert út á bolfiskveiðar í tvo til þrjá mánuði á ári. Magnús Blöndal segir samstarfið við útgerðina hafa verið til fyrirmyndar frá upphafi. Togarinn er fyrsta erlenda fiskveiðiskipið sem fengið hefur leyfi til prufuveiða í íslenskri lögsögu.

Mynd: Þorgeir Baldursson

„Þessi heimild er afar mikilvæg og prufutúrinn gekk vel. Áhöfnin hafði fram að þessu eingöngu stundað rækjuveiðar. Það þurfti í raun mjög lítið að lagfæra búnaðinn eftir prufutúrinn. Ef þessi heimild hefði ekki verið til staðar hefðum við þurft að senda starfsfólk héðan til Kanada til að taka þátt í prófunum á búnaðinum, sem hefði bæði verið kostnaðarsamt og óhagkvæmt. Ég er sannfærður um að þessi heimild muni nýtast okkur vel í framtíðinni og vil þakka atvinnuvegaráðuneytinu og Fiskistofu fyrir gott samstarf.“

Samstarf styrkir samkeppnishæfnina

„Við framkvæmd verkefna af þessari stærðargráðu leitum við jafnframt til fjölmargra fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu eftir sérfræðiþekkingu og samstarfi. Þannig byggjum við upp öfluga virðiskeðju þar sem fyrirtæki á svæðinu leggja sitt af mörkum og njóta góðs af verkefnunum sem þessum. Ávinningurinn birtist víða í atvinnulífinu hér fyrir norðan í tengslum við verkefni af þessari stærðargráðu.“

Bjartsýnn á framtíðina

Erlend verkefni eru áberandi í starfsemi Slippsins og segir Magnús Blöndal að stöðugt sé verið í viðræðum við erlend fyrirtæki. Hann segir að þessi þáttur starfseminnar sé stundum nokkuð tímafrekur, en jafnframt nauðsynlegur.

„Þetta er á margan hátt spennandi atvinnugrein og þær lausnir sem við höfum þróað hafa vakið verðskuldaða athygli. Ég leyfi mér því að vera bjartsýnn á framtíðina, en vil jafnframt leggja áherslu á að starfsumhverfið hér á landi þarf að vera samkeppnishæft á alþjóðavísu. Við búum yfir mikilli og sérhæfðri þekkingu á Eyjafjarðarsvæðinu og sú þekking hefur sannarlega skilað okkur langt,“ segir Magnús Blöndal.