Fara í efni
Fréttir

Stækkun Ráðhússins aftur á dagskrá

Mynd úr vinningstillögu Yrkis arkitekta frá 2021. Horft inn í Ráðhúsgarðinn, á þessu svæði hefur lengi verið bílastæði.

Hugmyndir eru uppi hjá Akureyrarbæ um að taka upp viðræður við Yrki arkitekta um útfærslu og hönnun á viðbyggingu og endurbótum á Ráðhúsi Akureyrarbæjar. Arkitektastofan vann til fyrstu verðlauna í hönnunarsamkeppni árið 2021 um endurbætur á ráðhúsinu.

  • Frétt akureyri.net í júlí 2021:

Yrki arkitektar hanna viðbyggingu við Ráðhúsið


Formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs bæjarins segir að taka þurfi ákvörðun um framkvæmdir innan tveggja til þriggja ára. Næsta skref verði að vinna frumhönnun.

Með stækkun Ráðhússins er ráðgert að færa alla miðlæga starfsemi bæjarins á einn stað. Það myndi skila margvíslegri hagræðingu og lægri rekstrarkostnaði til framtíðar, þar sem hluti stjórnsýslunnar er nú til húsa í leiguhúsnæði.

Hreyfing á málið á nýjan leik

Meirihlutinn í síðustu bæjarstjórn ákvað að leggja áherslu á önnur kostnaðarsöm verkefni fremur en að ráðast í stækkun Ráðhússins. Því varð ekkert af frekari útfærslu á hönnun stærra og endurbætts ráðhúss, eins og rætt var um í aðdraganda hugmyndasamkeppninnar.

Nú virðist hins vegar komin hreyfing á málið á ný. Á síðasta fundi bæjarstjórnar greindi Heimir Örn Árnason (D), formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs, frá því að vinningstillaga Yrkis arkitekta hefði verið dregin fram á ný og málið rætt við stofuna, „nema fram komi aðrar og betri hugmyndir.“

Heimir Örn Árnason, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs, á síðasta bæjarstjórnarfundi. Skjáskjót úr upptöku af vef bæjarins.

Framkvæmdir gætu hafist eftir fjögur til fimm ár

Á bæjarstjórnarfundinum sagði Heimir að taka þyrfti ákvarðanir á næstu tveimur til þremur árum, enda ljóst að ráðast þyrfti í endurbætur á húsinu. Hann benti jafnframt á að fram undan væru umfangsmiklar framkvæmdir við Hofsbót og á Akureyrarvelli og að taka þyrfti tillit til þeirra verkefna við tímasetningu framkvæmdanna á Ráðhúsinu. Hann sagði að nú væri rætt væri um að framkvæmdir gætu hafist í upphafi næsta áratugar, eftir um fjögur til fimm ár. Næsta skref væri að ráðast í frumhönnun á grundvelli vinningstillögunnar og í kjölfarið gera kostnaðaráætlun.

Mynd úr vinningstillögu Yrkis arkitekta frá 2021. Horft frá gatnamótum Glerárgötu og Gránufélagsgötu.

Skýr og metnaðarfullur tónn sleginn

Samkeppnin var hönnunarsamkeppni að undangengnu forvali sem var opið öllum þeim sem uppfylltu skilyrði forvalslýsingarinnar. Alls bárust 14 umsóknir um þátttöku í forvalinu og var samkeppnin haldin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.

Í niðurstöðu dómnefndar um vinningstillöguna sagði meðal annars á sínum tíma:

„Tillagan er í senn bæði nútímaleg, fáguð og ber ytri ásýnd tillögunnar með sér ákveðna festu sem fellur vel að hlutverki hússins sem Ráðhúss Akureyrar. Samspil hins nýja við hið gamla ber með sér virðingu fyrir sögu hússins, en slær um leið skýran og metnaðarfullan tón til framtíðar.“