Fara í efni
Fréttir

Öll skip Samherja í land vegna veðurs

Björgúlfur, EA 312, í fiskhöfninni á Akureyri í dag. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Öll skip Samherja eru komin til hafnar. Ákveðið var að þau myndu „flýja veðrið“ eins og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs fyrirtækisins, orðaði það í samtali við Akureyri.net í dag.

Fjögur skipanna eru við bryggju á Akureyri, Björgúlfur, Björgvin, Kaldbakur og Björg, en Harðbakur er á Dalvík. Björgúlfur átti að leggjast að bryggju á Dalvík í morgun að sögn Kristjáns, en varð að hætta við vegna þess hve hvasst var orðið og vont í sjóinn, og sigla til Akureyrar.

Kristján segir mjög óalgengt að skip komi í land vegna veðurs, en ekki hafi annað þótt hægt að þessu sinni. Spáð er vitlausu veðri á miðunum næsta sólarhringinn. „Við stefnum að því að flestir fari út á ný seint annað kvöld,“ sagði Kristján. Skipin höfðu öll verið að veiðum norður eða norðvestur af landinu.