Fara í efni
Fréttir

Bjarni Ólafsson bætist í flota Samherja

Hjörtur Valsson skipstjóri og Daníel Halldórsson yfirvélstjóri í brúnni á Bjarna Ólafssyni. Mynd: Samherji

Samherji hefur fest kaup á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 frá Síldarvinnslunni. Skipið var afhent í Neskaupstað í dag og heldur beint á síldveiðar. Skipstjóri í fyrstu veiðiferð Bjarna Ólafssonar á vegum Samherja er Hjörtur Valsson.

Gert er ráð fyrir að skipið komi til heimahafnar á Akureyri á næstu vikum. Þá verður því gefið nýtt nafn, fer í hefðbundið viðhald og búið undir komandi loðnuvertíð.

Samherji seldi á dögunum annað tveggja uppsjávarskipa félagsins, Margréti EA-710 til Færeyja. Með kaupunum á Bjarna eru þau orðin tvö á ný því fyrir er Vilhelm Þorsteinsson EA-11.

Bjarni Ólafsson er um 2000 tonn að þyngd og er burðargeta skipsins tæp 2000 tonn, að því er fram kemur á heimasíðu Samherja. Skipið er 67 metrar að lengd og 13 metra breitt. Það var smíðað árið 1999 í Noregi og keypt til Íslands árið 2015. Skipið er búið til veiða með nót og flottrolli, sem hefur í för með sér aukna möguleika og sveigjanleika í uppsjávarveiðum Samherja, segir á vef fyrirtækisins.

Bjarni Ólafsson við bryggju í Neskaupstað. Skipið kemur til heimahafnar á Akureyri á næstu vikum. Mynd: Samherji/Jóhann Freyr Jónsson