„Tel að vertíðin hafi gengið nokkuð vel“
Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA-11 og Bjarni Ólafsson AK-70, komu að landi á mánudaginn með síðasta síldarfarm ársins. Vilhelm Þorsteinsson til Eskifjarðar með um 950 tonn og Bjarni Ólafsson landaði 900 tonnum á Fáskrúðsfirði. Síldarvertíðinni, sem hófst um miðjan september, er þar með lokið hjá Samherja.
„Ég tel að vertíðin hafi gengið nokkuð vel. Það hefur verið ágætis veiði á köflum en vissulega hefur verið brælutíð annað slagið,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm á vef Samherja. „Veiðiferðirnar hafa verið misjafnlega langar eftir aðstæðum. Okkur er líka stýrt eftir því hvernig gangurinn er í vinnslunni. Þetta snýst mikið um að koma hráefninu reglulega til vinnslu og tryggja þannig að ferskleiki afurða sé sem mestur,“ segir skipstjórinn.

Þrír úr áhöfn Vilhelms EA þrífa skipið í gær eftir að síldarvertíðinni lauk. Frá vinstri: Ægir Þormar Pálsson, Haraldur Guðmannsson og Sigurður Pálsson.
Guðmundur segir að síðasti túrinn hafi gengið vel. „Já, það var bara fínasta veiði í síðasta túrnum. Þetta var sólarhringur, höfn í höfn, og við fengum aflann í tveimur holum. Við vorum hérna austan við landið, á Seyðisfjarðardýpinu og Norðfjarðardýpinu, sem eru svipaðar slóðir og við höfum verið á undanfarnar vikur,“ segir Guðmundur.
Hráefnið er ekki af verri endanum. „Þetta er bara mjög fín síld, blanda af íslenskri og norskri, og gott hráefni,“ segir Guðmundur. Skipið hefur landað allri síldinni á Eskifirði á vertíðinni og fer hráefni til vinnslu hjá Eskju.
Frábært skip og fyrsta flokks áhöfn
Guðmundur nefnir að lykilatriði í veiðunum, nú sem fyrr, sé gott skip og áhöfn. „Þetta er auðvitað frábært skip en þú gerir ekkert nema með góða áhöfn og hún er fyrsta flokks hjá okkur, hörkukarlar og áhugasamir sjómenn sem eru hérna og hafa verið.“
Að lokinni löndun tekur við sigling til heimahafnar á Akureyri. Fljótlega hefst undirbúningur fyrir komandi loðnuvertíð. „Nú er stopp í einhvern tíma og svo þarf bara að krossa fingur og vona að það verði gefin út meiri loðna,“ segir Guðmundur skipstjóri.