Fara í efni
Fréttir

Hrikaleg tilfinning fyrst en mikill léttir

Vilhelm Þorsteinsson EA og lóðsbátur Hafnasamlags Norðurlands við Krossanes. Mynd: Súlur, björgunarsveitin á Akureyri.

„Tilfinningin var hrikaleg þegar maður sá þetta fyrst,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA-11, um það þegar skipið losnaði frá bryggju í Krossanesi á föstudagskvöldið; bryggjupollar höfðu gefið sig og skipið hékk á einni taug. Guðmundur býr steinsnar frá og sér af heimili sínu yfir svæðið. „Ég var náttúrulega bara heima í glugga að fylgjast með. Ég var hálfsmeykur við að þetta væri ekki alveg eðlilegt ástand og ákvað að fara niður eftir. Þegar ég var á leiðinni í bílinn kemur hringingin um að skipið sé að slitna frá,“ segir skipstjórinn sem var einna fyrstur á vettvang.

  • Fréttir akureyri.net um atvikið:

Vilhelm losnaði frá bryggju í Krossanesi

Bryggjupollar gáfu sig – Fleiri myndir

Þrátt fyrir erfiðar aðstæður tókst að koma áhöfn um borð, ná stjórn á skipinu og koma því örugglega að Oddeyrarbryggju. Rætt er við Guðmund skipstjóra um föstudagskvöldið á heimasíðu Samherja í morgun. Þar hrósar hann öllum sem að komu, starfsmönnum hafnarinnar og áhöfn á lóðsbátunum, björgunarsveit og lögreglu og sínum mönnum, áhöfn skipsins sem fór um borð.

Vaktmaður var á skipinu og uppgötvaðist því fljótt hvað var á seyði og var hægt að kalla eftir aðstoð. Viðbragðsaðilar voru ræstir út og áhöfnin á skipinu sömuleiðis. Báðir skipstjórarnir á Vilhelm, þeir Guðmundur og Birkir Hreinsson, komu á vettvang og tóku þátt í aðgerðum.

Mynd: Súlur, björgunarsveitin á Akureyri

Leist ekkert á blikuna í upphafi

„Tilfinningin var hrikaleg þegar maður sá þetta fyrst. Mér leist ekkert á blikuna og hugsaði hvað myndi gerast ef þessi endi slitnaði. Manni fannst þetta auðvitað vera óratími á meðan beðið var eftir dráttarbát en raunverulega gekk þetta allt saman ótrúlega fljótt. Þetta eru um 40 mínútur sem liðu frá því kallað er eftir aðstoð og þangað til við erum komnir um borð í skipið,“ segir Guðmundur á vef Samherja.

Hann segir í raun ótrúlegt hvað áhafnarmeðlimir voru fljótir á staðinn. „Stór hluti áhafnar var mættur á bryggjuna nánast um leið og þeir fengu kallið og það skipti auðvitað öllu máli.“

Skipstjórarnir á Vilhelm Þorsteinssyni, Birkir Hreinsson, til vinstri, og Guðmundur Þ. Jónsson, komu báðir á vettvang á föstudagskvöldið og tóku þátt í aðgerðum. Mynd af vef Samherja.

Ekki einfalt að komast um borð

Dráttarbátur aðstoðaði við að koma áhöfninni um borð í skipið, sem var ekki einfalt verkefni í aftakaveðri og stórsjó. Á vef Samherja segir að fyrst hafi verið reynt stjórnborðsmegin en skipið verið á svo mikilli hreyfingu ákveðið var að fara bakborðsmegin, nær landi þar sem veðrið var viðráðanlegra. „En þar var ekki opin hurð þannig að lausnin var að koma inn einum manni stjórnborðsmegin sem opnaði fyrir hinum. Áhöfnin gat þá hoppað úr lóðsinum í stiga á skipinu og um borð,“ segir Guðmundur.

Útsjónarsemi þurfti því til að koma mönnum um borð með sem öruggustum hætti, í segir í umfjölluninni á vef Samherja. „Skiptu þar sköpum fumlaus vinnubrögð og góð hæfni áhafnar á lóðsbát við erfiðar aðstæður.“

Mynd: Súlur, björgunarsveitin á Akureyri

Góð samskipti lykilatriði

„Það fyrsta sem við gerum þegar komið er um borð er að koma sambandi á allt, þannig að við séum í samskiptum við lóðsinn, strákana úti á dekki, vélstjóra og fleiri. Þessi samskipti skipta öllu máli í erfiðum aðstæðum,“ segir Guðmundur. „Um leið og við komum um borð fann ég að við vorum að ná tökum á aðstæðum en auðvitað þurfti að vanda sig. Við vildum til dæmis ekki kúpla skrúfunni inn strax, við vorum hræddir við að það væri of grunnt að aftan og þess vegna reyndum við að snúa skipinu áður“

Tveir dráttarbátar voru á þessum tímapunkti komnir á svæðið. „Sá stærri hélt í okkur fyrst. Þannig gátum við snúið og svo byrjuðum við bara að bakka. Það gekk mjög vel að koma vélunum í gang, ekkert sem hikstaði og ég hafði raunar aldrei áhyggjur af því,“ segir Guðmundur.

Frábær frammistaða allra

Átta menn fóru um borð í skipið og sinntu verkefninu af fagmennsku, segir á vef Samherja. „Það voru allir yfirvegaðir. Menn eru klárir á sínu þegar svona kemur upp, fóru bara um borð og gengu í það sem þurfti að gera. Áhöfnin stóð sig frábærlega og á hrós skilið fyrir sína frammistöðu,“ segir Guðmundur.

Sama gildi um aðra viðbragðsaðila sem sýndu skjót viðbrögð. „Allir stóðu sig vel, hvort sem það voru starfsmenn hafnarinnar og áhöfn á lóðsbátunum, björgunarsveit, lögregla eða aðrir. Mig langar að nota tækifærið og þakka öllum sem að verkefninu komu og leystu það vel af hendi. Það var mikill léttir að ekki fór verr,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA.