Fara í efni
Fréttir

Engar skemmdir urðu á Vilhelm EA

Vilhelm Þorsteinsson EA 11 við Oddeyrarbryggju í sól og froststillu í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Vilhelm Þorsteinsson EA-11, uppsjávarskip Samherja, skemmdist ekkert þegar það slitnaði frá bryggju í Krossanesi á föstudagskvöldið. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður tókst að koma áhöfn um borð, ná stjórn á skipinu og koma því örugglega að Oddeyrarbryggju, eins og akureyri.net sagði frá eftir miðnætti aðfararnótt. Skipið var skoðað ítarlega um helgina og reyndist óskemmt. Þetta kemur fram á heimasíðu Samherja í morgun.