Bryggjupollar gáfu sig – Fleiri myndir
Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, losnaði frá bryggju í Krossanesi á Akureyri í vonskuveðri í gærkvöld, eins og akureyri.net greindi frá skömmu eftir miðnætti. Bryggjupollar, sem skipið var bundið við, gáfu sig með þessum afleiðingum.
Aðstæður voru mjög krefjandi, norðan stórhríð og mjög hvasst, en betur fór en á horfðist. Áhöfn Vilhelms komst um borð með aðstoð starfsmanna Akureyrarhafnar – skipverja á lóðsinum – og félaga í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, og skipinu var siglt að Oddeyrarbryggju þar sem það liggur nú bundið.
- Frétt akureyri.net í nótt:
Vilhelm losnaði frá bryggju í Krossanesi
Samkvæmt upplýsingum frá Samherja virðist skipið óskemmt en það á eftir að skoða nánar.
Í morgun bárust akureyri.net fleiri myndir sem teknar voru á vettvangi í gærkvöldi, m.a. frá Samherja og Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, t.d. af bryggjupollum sem skemmdust, og neðst í fréttinni er örstutt myndskeið af Facebook síðu Súlna.







Vilhelm EA kominn að Oddeyrarbryggju við Pollinn þar sem skipið er nú.
- Smellið HÉR til að sjá myndskeið af vettvangi í Krossanesi. Myndskeiðið var birt á Facebook síðu Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri.