Norðursnakk valið Norðansprotinn 2025

Verkefnið Norðursnakk varð hlutskarpast í nýsköpunarkeppninni Norðansprotanum á dögunum; verkefnið hlaut því titilinn Norðansprotinn 2025 og 500.000 krónur í verðlaunafé.
Lokaviðburður Norðansprotans fór fram á föstudaginn var. Um er að ræða „ nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands,“ að því er segir í tilkynningu frá SSNE, Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, sem stendur að keppninni ásamt fleirum.
„Leitin hófst 19. maí og voru 22 glæsileg verkefni sem skiluðu inn umsóknum, en af þeim voru valin átta verkefni sem fengu að kynna verkefni sitt fyrir dómnefnd.“
Eftir kynningar og spurningar frá dómnefnd stóðu þrjú verkefni upp úr:
- Norðursnakk – Verkefni sem sameinar íslenskan uppruna, gæði og frumleika í íslensku snakki úr til dæmis harðfiski, þorskroði og byggi.
- Affordable Iceland – Vefsíða sem auðveldar ferðamönnum sem koma til Íslands við að skoða landið á sem hagkvæmdastan hátt, hlaut verðlaunafé upp á 300.000 kr.
- NorðanStraumur / StreamNorth - Auglýsinga- og streymisvettvangur á netinu sem varpar ljósi á viðburði, afþreyingu og umhverfi á Norðurlandi – í beinni og eftir á, hlaut verðlaun upp á 200.000 kr.
Dómnefndin var skipuð Sesselju Barðdal frá Drift EA, Sverri Gestssyni frá Upphaf fjárfestingasjóði, Jóni Inga Bergsteinssyni frá IceBAN, samtökum englafjárfesta, og Hólmfríði Sverrisdóttur rektors Háskólans á Hólum. „Var dómnefnd sammála um að valið hefði verið einstaklega erfitt og greinilegt að mikil gróska í norðlenskum frumkvöðlum,“ segir í tilkynningunni.
„Norðansprotinn er hluti af nýsköpunarferðalagi Norðurlands sem er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndarstigi að fjárfestingu. Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA, Eims og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Upphaf fjárfestingasjóði, sem veitti verðlaunafé til Norðansprotans.“