Fara í efni
Fréttir

Maríanna var ráðin skólastjóri Lundarskóla

Maríanna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri við Lundarskóla. Hún tekur við starfinu 1. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

Maríanna hefur gegnt starfi deildarstjóra yngri deildar og staðgengils skólastjóra í 11 ár og áður var hún kennari við skólann.

Elías Gunnar Þorbjörnsson, skólastjóri Lundarskóla síðastliðin 10 ár, tekur við starfi skólastjóra Giljaskóla þann 1. febrúar.