Fara í efni
Fréttir

VMA fékk íslensku menntaverðlaunin

Að lokinni afhendingu Íslensku menntaverðlaunanna á Bessastöðum. Ásta F. Flosadóttir aðstoðarskólameistari VMA, Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Haukur Eiríksson brautarstjóri rafiðnbrautar VMA. Mynd af vef VMA.

Verkmenntaskólinn á Akureyri hlýtur Íslensku menntaverðlaunin í flokki iðn- og verkmennta í ár, fyrir sjálfbæra kennslustofu, sem rafdeild skólans setti upp fyrr á þessu ári. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti verðlaunin á Bessastöðum í gær og fyrir hönd VMA tóku við þeim Ásta F. Flosadóttir aðstoðarskólameistari og Haukur Eiríksson brautarstjóri rafiðngreina. RÚV sýndi frá athöfninni í kvöld.

  • Smellið hér til að sjá síðu um sjálfbæru kennslustofuna á vef VMA.

„Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum,“ segir í tilkynningu um verðlaunin sem send var út í kvöld. „Að auki er veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Verðlaunin ná til leik-, grunn- og framhaldsskólastigs, sem og til listnáms og félags- og tómstundastarfs.“

Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun

Verkmenntaskólinn á Akureyri hlýtur Íslensku menntaverðlaunin fyrir sjálfbæra kennslustofu, eins og fram kom í upphafi, „nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt. Í skólanum hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð fyrir nemendur til að fást við margs konar verkefni sem tengjast sjálfbærri orkunotkun. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur hafi þekkingu til að leysa orkumál samtímans á sjálfbæran hátt,“ segir í tilkynningunni.

Í umsögn Íslensku menntaverðlaunanna um sjálfbæru kennslustofuna í VMA segir:

VMA á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar vegna frumkvöðlastarfs síns á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og hagnýtrar kennslu. Með þróun sjálfbærrar kennslustofu, þar sem sólarsellur og vindorka sjá nemendum fyrir rafmagni til daglegra nota, hefur skólinn skapað lifandi lærdómssamfélag þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja nám sitt við raunveruleg verkefni og samfélagsáskoranir samtímans. Verkefnið sýnir skýra framtíðarsýn um hvernig iðn- og verkmenntun getur verið leiðandi afl í loftslags- og orkumálum. Nemendur taka virkan þátt í þróun, rekstri og skilningi á tækninni og öðlast þar með dýrmæta verklega reynslu, ábyrgðartilfinningu og hæfni sem nýtist þeim í framtíðarstörfum. Verkefnið stuðlar jafnframt að jákvæðum skólabrag, auknu samstarfi við atvinnulíf og sterkari tengingu milli menntunar og samfélags. Framlag VMA er bæði frumlegt og áhrifamikið og hefur skólinn með þessu sýnt hvernig skapandi hugsun, fagmennska og samstarf geta leitt til raunverulegra menntaumbóta og orðið öðrum skólum fyrirmynd.

Auk þessa verkefnis rafdeildar VMA voru tvö önnur verkefni tilnefnd til verðlaunanna í flokki iðn- og verkmennta; annars vegar Menntaskólinn á Ísafirði fyrir hönnun og smíði tímatökuhúss fyrir skíðasvæðið í Tungudal og hins vegar matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Sigurður Daði Friðriksson og Ægir Friðriksson fyrir námsefnið Matreiðsla, heildstætt og vandað námsefni fyrir matreiðslunám á framhaldsskólastigi

Hin verðlaunin

  • Verðlaun í flokknum Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur fær Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs.

„Starfsbrautin er ætluð nemendum með fötlun eða sérstaka námserfiðleika og markvisst er unnið að því að auka sjálfstæði þeirra og sjálfsábyrgð,“ segir í tilkynningunni.

„Námið er sniðið að hverjum nemanda og áhersla lögð á að hlusta á óskir þeirra. Vettvangs- og fræðsluferðir, útinám, heimsóknir, ratleikir, verkleg viðfangsefni, sköpun, hreyfing, hönnun og lausnaleit eru dæmi um þær fjölbreyttu kennsluaðferðir sem áhersla er lögð á.“

  • Verðlaun í flokknum Framúrskarandi kennari hlýtur Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu.

„Á hverju ári setur Sandra upp metnaðarfullar og vandaðar leiksýningar með nemendum í Seljaskóla sem hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli. Sýningarnar þykja einkennast af faglegum vinnubrögðum, ríkri listrænni sýn og vandaðri útfærslu þar sem hvert smáatriði er úthugsað,“ segir í tilkynningu um verðlaunin.

  • Framúrskarandi þróunarverkefni – Verðlaunin í ár eru veitt verkefninu Söngvavori sem er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla.

Síðast liðið vor náði verkefnið til ríflega 3000 barna í 140 leikskólum og 15 tónlistarskólum víða um land. Á hverju ári er valið íslenskt tónskáld og verk þess útsett sérstaklega með raddsvið leikskólabarna og getu ungra hljóðfæraleikara í huga. Leikskólabörnin heimsækja tónlistarskólana og æfa með nemendum á aldrinum 10–16 ára sem leika undir á hljóðfæri. Verkefninu lýkur með tónleikum í menningarhúsum hvers sveitarfélags. „Reynsla af verkefninu og rannsóknir sýna að upplifunin af því að stíga á svið og flytja tónlist fyrir framan fjölskyldur og nærsamfélag hefur mótandi áhrif á sjálfsmynd og félagsfærni barna,“ segir í tilkynningunni,

  • Hvatningarverðlaun Íslensku Menntaverðlaunanna eru veitt einstaklingi, hópi eða samtökum sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Í ár hlýtur þessi verðlaun Opni Leikskóli MEMMM fyrir mikilvægt starf í þágu barnafjölskyldna með ung börn.

„Opni leikskólinn býður barnafjölskyldum aðstöðu til að hittast; leika, syngja og skapa í örvandi umhverfi. Starfsemin mætir þörfum fjölskyldna sem bíða eftir leikskólaþjónustu og skapar börnum og foreldrum tækifæri til samveru, leiks og fræðslu. Á síðasta skólári voru heimsóknir í skólann um 5.200.“


Að menntaverðlaununum standa embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Samtök iðnaðarins.

Athygli er vakin á því að þegar er hægt að senda inn tillögur að tilnefningum fyrir næsta ár, sjá á http://www.skolathroun.is þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um verðlaunahafa og tilnefningar.