Fara í efni
Fréttir

VMA og Iðavöllur á meðal tilnefndra

Verkmenntaskólinn á Akureyri og verkefni sem leikskólinn Iðavöllur er aðili að eru á meðal þeirra sem tilnefnd eru til Íslensku menntaverðlaunanna.

Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna, sem og verkefni sem leikskólinn Iðavöllur á Akureyri tekur þátt í ásamt fleiri leikskólum.

Verkmenntaskólinn er tilnefndur í flokknum iðn- og vekrmenntir ásamt tveimur öðrum. Verkefnið sem skólinn er tilnefndur fyrir er „sjálfbær kennslustofa, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt – en í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast.“ Fjallað var um þetta verkefni VMA í fréttum Rúv í vor - sjá hér.

Þrjú verkefni eru tilnefnd í flokki þróunarverkefna, þar á meðal Stilla – hæglátt skólastarf þar sem leikskólinn Iðavöllur á Akureyri er á meðal þátttakenda. Stilla „er samvinnuverkefni rannsakenda og starfsfólks í fjórum leikskólum, Aðalþingi í Kópavogi, Iðavelli á Akureyri, Rauðhóli í Reykjavík og Uglukletti í Borgarnesi, um að gefa börnunum tækifæri til að sökkva sér í leik og gefa þeim meiri tíma til að kanna hugmyndir sínar.“

Það eru Samtök áhugafólks um skólaþróun sem standa að Íslensku menntaverðlaununum, en sérstakt viðurkenningarráð hefur umsjón með tilnefningum. Verðlaunin voru endurreist árið 2020 og verður komandi verðlaunaveiting því sú sjöunda á þessu formi. 

Allar tilnefningar má sjá í frétt á vef Skólaþróunar - sjá hér.