Fara í efni
Fréttir

Íbúum fjölgar en börnum í grunnskólum fækkar

Nýtt skólaár er hafið í grunnskólum Akureyrar. Mynd: Agence Olloweb/Unsplash.com.

Um 2.430 nemendur verða í grunnskólum Akureyrar í vetur. Þar af eru tæplega 220 börn að hefja nám í fyrsta bekk. Grunnskólanemendum í bænum hefur fækkað á undanförnum árum þrátt fyrir að Akureyringum hafi fjölgað.

Skýringin liggur fyrst og fremst í smærri árgöngum barna að sögn Árna Konráðs Bjarnasonar, rekstrarstjóra á fræðslu- og lýðheilsusviði Akureyrarbæjar. „Þetta er bara lýðfræðileg þróun. Það fæðast færri börn,“ segir Árni og rifjar upp að fyrir um 15 árum hafi nemendur í grunnskólum bæjarins verið um 2.600. Nú stefnir í að þeir verði um 2.430.

Minni árgangar inn en út

Árgangarnir sem nú eru að koma inn í grunnskólana eru minni en margir þeirra sem eru að útskrifast. Þannig eru 220 börn í árganginum sem nú hefur skólagöngu á meðan 300 barna árgangur fer úr skólanum. Það sé því skiljanlegt að það fækki í skólunum. Árni bendir á að þótt Akureyringum fjölgi og fleiri börn flytji til bæjarins en frá honum dugi það ekki til að vega upp á móti fækkun fæðinga. Árgangarnir 2018, 2019 og 2020 séu allir tiltölulega fámennir árgangar.

Lundarskóli fjölmennastur

Nemendafjöldinn er þó misjafn eftir skólum. Lundarskóli verður áfram fjölmennasti grunnskóli bæjarins með ríflega 480 nemendur í vetur, á meðan grunnskólinn í Hrísey er minnsti skóli bæjarins með 16 grunnskólanemendur. Að sögn Árna geta sveiflurnar í nemendafjölda verið töluverðar milli ára. Á næsta ári stefni t.d. í að stærri árgangur komi inn í grunnskólana en útskrifist, sem hafi ekki gerst í nokkur ár. Árið þar á eftir fari hins vegar um 300 barna árgangur úr grunnskólunum og mun fámennari árgangur komi inn í staðinn.

Ýmislegt hefur einnig verið unnið í skólahúsnæði bæjarins í sumar. Auk hefðbundinna viðhaldsframkvæmda þá var lokahnykkurinn á frágangi á skólalóð Glerárskóla kláraður. Þá var í fyrsta skipti starfrækt aðlögunarfrístund fyrir verðandi fyrsta bekkinga dagana 6.–20. ágúst sl.

Hér fyrir neðan má annars sjá nemendafjölda í grunnskólum Akureyrar veturinn 2026-27:

  • Hríseyjarskóli – 16
  • Hlíðarskóli – 20
  • Oddeyrarskóli – 160
  • Glerárskóli – 190
  • Naustaskóli – 315
  • Síðuskóli – 355
  • Giljaskóli – 370
  • Brekkuskóli – 420
  • Lundarskóli – 480