Fara í efni
Fréttir

Listgjörningurinn náði til þriggja heimsálfa

Fölsk heimasíða var sett upp í nafni Samherja á dögunum og fölsuð fréttatilkynning send út til fjölmiðla víða um heim. Nú er komið í ljós að gjörningurinn náði til þriggja heimsálfa og tilkynning send til 100 fjölmiðla. Þetta kemur fram á vef Samherja.

Tilkynningin sem birt var á vef Samherja í morgun er svohljóðandi:

„Í ljós hefur komið að svokallaður „listgjörningur“ með misnotkun á vörumerki Samherja náði til til þriggja heimsálfa og var tilraun til misnotkunar send til 100 fjölmiðla á Íslandi, Noregi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Ástralíu.

Samherji fékk vitneskju um þessa víðtæku misnotkun þegar félagið fékk lagt lögbann við ólöglegri notkun vörmerkja félagsins meðal annars við notkun á léni í nafni Samherja í Bretlandi sem áður hefur sagt frá.

Í upphafi lögbannskröfunnar var veittur hæfilegur frestur til varna og nú hefur forsvarsmaðurinn ráðið þrjá lögmenn í Bretlandi til að gæta hagsmuna sinna.

Eins og sjá má af framansögðu liggur fyrir að ráðist hefur verið í víðtæka og kostnaðarsama aðgerð gegn vörumerki félagins.

Samherji hefur eingöngu beint sjónum sínum að því að verja mikilvæg vörumerki sín svo sem öll fyrirtæki myndu gera hvarvetna í heiminum en leitt hjá sér túlkanir á list og tjáningarfrelsi.

Samherji hf.

Þorsteinn Már Baldvinsson.“