Lifetrack kynning og kennsla hjá Drift EA
Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir, stofnendur heilsuappsins LifeTrack, halda kynningar- og kennslufund í kvöld í Messanum á 4. hæð í Drift EA á Akureyri. Fundurinn, sem haldinn er í samstarfi við Drift EA er opinn öllum áhugasömum og hefst kl. 20.
Í fréttatilkynningu kemur fram að þetta sé í fyrsta sinn sem kynningarfundur af þessu tagi er haldinn í heimabyggð, þar sem norðlensk nýsköpun mætir heilsutækni framtíðarinnar. LifeTrack hefur að undanförnu notið vaxandi vinsælda og er í dag nýtt af þúsundum Íslendinga.
Með LifeTrack geta notendur meðal annars unnið markvisst að bættri líkamlegri og andlegri heilsu, fengið betri yfirsýn yfir lífsstíl og daglegar venjur og tekið upplýstari ákvarðanir um eigin heilsu.
Á fundinum fá gestir kynningu á LifeTrack, sjá hvernig appið virkar í framkvæmd og heyra beint frá stofnendum um hugmyndina að baki lausninni, þróunarferlið og framtíðarsýn verkefnisins.
Í tilkynningunni segir að viðburðurinn sé opinn öllum sem hafa áhuga á heilsu, tækni og nýsköpun, óháð fyrri reynslu. Sérstaklega er hvatt til þátttöku fólks 50 ára og eldra. Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin.