Fara í efni
Fréttir

KEA gerist bakhjarl Driftar EA

Sesselja Barðdal, framkvæmdastýra Driftar EA, Hildur Ösp Gylfadóttir varaformaður stjórnar KEA, Kristján Þór Júlíusson, stjórnarformaður Driftar EA, Eiríkur Haukur Hauksson, stjórnarformaður KEA, og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA.

KEA og Drift EA hafa gert með sér samkomulag sem miðar að því að efla frumkvöðlastarf, nýsköpun og uppbyggingu nýrra fyrirtækja á Norðurlandi. Með samkomulaginu gerist KEA bakhjarl Driftar EA og tekur þar með virkan þátt í að styrkja stuðningsumhverfi sprota- og vaxtarfyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Drift EA.

Í tilkynningunni kemur fram að KEA hafi lengi lagt áherslu á að fjárfesta í ýmiss konar verkefnum sem styðja við vöxt atvinnulífs á félagssvæði sínu og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar í heimabyggð. Þá hefur KEA einnig komið beint að fjárfestingum í nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækjum, fyrst með aðkomu að Tækifæri hf. á sínum tíma og nú í gegnum framtakssjóðinn Landvætti sem stofnaður var nýverið. Aðkoma KEA mun auka svigrúm Driftar EA til að tengja saman hugmyndir, fjármagn og þekkingu og skapar þannig sterkari forsendur fyrir verðmætasköpun í heimabyggð. 

„Drift EA er lofsvert framtak og mun gegna lykilhlutverki í uppbyggingu nýrra hugmynda og fyrirtækja og sjáum við sterka samlegð í því við okkar fjárfestingaáherslur. Með þessu samstarfi erum við með öflugu fólki og fyrirtækjum að fjárfesta í skapandi umhverfi, hugmyndum og framtíð svæðisins og þetta er rökrétt skref hjá okkur í KEA í framhaldi af því að framtakssjóðnum Landvættum var nýlega ýtt úr vör með Kaldbaki,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA í fréttatilkynningunni.

Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Driftar EA, segir að það sé mikill akkur að fá jafn sterkan aðila og KEA í lið með sér. „Með samstarfinu sameinum við krafta fjárfestis, sem hefur skýra sýn og sterka samfélagslega ábyrgð, við lifandi frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfi. Samstarfið mun skapa raunveruleg tækifæri fyrir hugmyndir að vaxa og dafna hér á svæðinu og skapar skilyrði fyrir fjölbreytt og öflugra atvinnulíf,“ segir Sesselja í fréttatilkynningu Driftar.