Fara í efni
Fréttir

Kaupa helming í Ice Fresh á 4,7 milljarða

Bás Samherja og Ice Fresh Seafood á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í Barcelona fyrr á árinu. Mynd af vef Samherja

Samherji og Síldarvinnslan hafa gengið frá kaupum þess síðarnefnda á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood en með því lýkur viðræðum sem fyrst var tilkynnt um í lok mars á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu. Fjárfesting Síldarvinnslunnar er 32,2 milljónir evra, andvirði tæplega 4,7 milljarða króna.

Verðmæti Ice Fresh Seafood í viðskiptunum er metið 42,9 milljónir evra (rúmlega 6,2 milljörðum) sem jafngildir 1,76 sinnum bókfært virði eigin fjár þess hinn 31. desember 2022, segir í tilkynningunni.

Þar segir:

  • Viðskiptin felast annars vegar í kaupum á núverandi hlutum af Samherja hf. fyrir 10,7 milljónir evra (um 1,5 milljarð króna) og hins vegar útgáfu nýs hlutafjár í Ice Fresh Seafood að fjárhæð 21,5 milljónir evra (um 3,1 milljarð).
  • Heildarvirði Ice Fresh Seafood verður 64,4 milljónir evra eftir hlutafjáraukninguna og fjárfesting Síldarvinnslunnar nemur 32,2 milljónum evra.

Sölunet til meira en 60 landa

Gústaf Baldvinsson er framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood og hefur gegnt því starfi frá stofnun fyrirtækisins í janúar 2007. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa og á bak við það er áratuga þekking og viðskiptasambönd á helstu mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang, segir í tilkynningunni.

Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar, til vinstri, og Gústaf Baldvinsson framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood.

„Eins og greint var frá í tilkynningu um upphaf viðræðna hinn 29. mars á þessu ári er Ice Fresh Seafood að fullu í eigu Samherja hf. sem er eigandi að 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar hf., er jafnframt forstjóri Samherja hf. Með vísan til ákvæða laga og starfsreglna stjórnar þá vék Þorsteinn Már sæti innan stjórnar Síldarvinnslunnar hf. við meðferð málsins og kom ekki að ákvörðunartöku vegna þess.“

Samhliða þessum viðskiptum mun Ice Fresh Seafood ganga frá kaupum á eignarhlutum í erlendum sölufélögum sem fyrirtækið hefur átt í farsælu viðskiptasambandi við undanfarin ár, að því er segir í tilkynningunni. „Um er að ræða helmingshlut í Seagold Ltd. í Bretlandi, 100% eignarhlut í Ice Fresh Seafood SAS í Frakklandi, 67% hlutafjár í Ice Fresh Seafood Spain S.L. og helmingshlut í Aquanor Marketing Inc. í Bandaríkjunum fyrir samtals 13,9 milljónir evra. Verðmæti félaganna fjögurra í þessum viðskiptum er 1,37 sinnum bókfært virði eigin fjár þeirra í árslok 2022. Félögin voru áður hluti af samstæðu Samherja Holding ehf. og unnið hefur verið að viðskiptunum frá því í lok árs 2022.

Þá mun Ice Fresh Seafood ganga frá kaupum á helmingshlut í sölufélaginu Cabo Norte S.A. á Spáni af Síldarvinnslunni fyrir 4,9 milljónir evra. Virði hlutarins byggir á því að verðmæti Cabo Norte S.A. sé 1,3 sinnum bókfært virði eigin fjár félagsins í lok árs 2022.

Velta Ice Fresh Seafood var 337 milljónir evra árið 2022 og velta erlendu sölufélaganna var 194 milljónir evra. Samanlögð velta að teknu tilliti til sölu milli félaga var 485 milljónir evra. Samanlögð EBITDA félaganna var 6,7 milljónir evra leiðrétt fyrir einskiptis kostnaði hjá Ice Fresh Seafood vegna stríðsins í Úkraínu.“

Rökrétt framhald

„Fjárfesting í Ice Fresh Seafood er gerð í því skyni að styrkja sölu- og markaðsmál félagsins og er rökrétt framhald af þróun sem hefur átt sér stað innan Síldarvinnslunnar hf. á undanförnum árum og birtist meðal annars í kaupum á Vísi hf. í Grindavík á síðasta ári“ segir GunnÞór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, í tilkynningunni. „Ice Fresh Seafood hefur í mörg ár verið leiðandi í sölu- og markaðssetningu íslenskra sjávarafurða. Með þessum viðskiptum er Síldarvinnslan að komast lengra í virðiskeðju sjávarútvegs og nær neytendum þeirra afurða sem við framleiðum. Í því felast ákveðin sóknartækifæri.“

Spennandi áskoranir

Gústaf Baldvinsson, framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood, segir Síldarvinnsluna hafa verið leiðandi framleiðanda uppsjávarafurða á Íslandi í áratugi. „Við hjá Ice Fresh Seafood höfum byggt upp sterk tengsl við fyrirtækið á undanförnum árum með sölu á hluta afurða þess. Með kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi hf. í Grindavík varð Síldarvinnslan jafnframt stór framleiðandi bolfiskafurða. Samband okkar við Vísi hf. nær enn lengra aftur enda höfum við séð um sölu á hluta afurða fyrirtækisins í mörg ár. Við þessi viðskipti öðlast Ice Fresh Seafood ákveðna sérstöðu með aukinni aðkomu að sölu bæði íslenskra bolfisk- og uppsjávarafurða. Það skapar spennandi áskoranir sem við hlökkum til að takast á við.“