Fara í efni
Fréttir

Ítalía, Spánn, Köben og Vilníus í beinu flugi

Frá gamla bænum í Alicante. Heimsferðir fljúga á Alicante flugvöll í september. Mynd: SNÆ

Norðlendingar hafa um ýmsa kosti að velja þegar kemur að ferðalögum í beinu flugi frá Akureyri í haust. Fyrir utan flugið með easyJet til London og Manchester sem hefst í október eru nokkrar sérferðir á döfinni.  

 Akureyri.net hefur tekið seman upplýsingar um þær ferðir sem okkur er kunnugt um. 

  • Spænsk sól á Alicante
    Heimsferðir bjóða upp á beint flug til Spánar í september. Um er að ræða 10 daga ferð dagana 22. september til 1. október. Flogið er á Alicante-flugvöll. Hægt er að velja á milli gististaða í Alicante, Albir eða Benidorm en þetta eru allt áfangastaðir sem íslenskir sólardýrkendur þekkja vel. 
  • Náttúrufegurð á Ítalíu 
    Heimsferðir ætla að fljúga til Calabria á Ítalíu í haust, nánar tiltekið dagana 29. september – 08. október. Calabria er sagt vera eitt fallegasta hérað á Ítalíu, staðsett í suðurhluta landsins og segir í kynningu á heimasíðu Heimsferða að Calabria sé þekkt fyrir óspillta náttúru, sem gerir það að einu af mest óspilltu og náttúrulegu svæðum á Ítalíu. 
  • Porto í Portúgal
    Ferðaskrifstofan Aventura er með tvær ferðir til Porto í Portúgal í október í beinu flugi frá Akureyri. Um er að ræða ferðir yfir helgi en nú þegar er uppselt í báðar ferðirnar.
  • Haustferð til Vilníus
    Kompaníferðir bjóða upp á beint flug til Vilniusar, höfuðborgar Litáen, dagana 14.-18. október. Á heimasíðu ferðaskrifstofunnar segir að Litháen sé vaxandi áfangastaður í Evrópu sem sameinar ríka sögu, athyglisverða menningu og hagstætt verðlag. Októbermánuður er kjörinn tími til að heimsækja landið, þegar haustlitirnir prýða borgir og náttúru. 
  • Aðventan í Kaupmannahöfn
    Ferðaskrifstofan Nonni Travel verður með jólaferð til Kaupmannahafnar dagana 29. nóvember til 2. desember. Ferðin er sögð sameina sögu, menningu og sanna jólatöfra. Nauðsynlegt er að bóka sig í ferðina fyrir 25. september.
  • Jól og áramót í Egyptalandi
    Kompaníferðir hafa boðið upp á ferðir til Egyptalands um áramótin í beinu flugi frá Akureyri undanfarin tvö ár. Um næstu áramót verður reyndar ekki farið frá Akureyri heldur frá Keflavík þann 23. desember en á heimleiðinni, þann 5. janúar, er flogið beint til Akureyrar. Þessi ferð er enn ekki komin á heimasíðuna þeirra en væntanleg í sölu innan skamms.
  • Skíðaferð til Ítalíu
    Kompaníferðir verða með skíðaferð til Ítalíu í beinu flugi frá Akureyri. Dagsetning ferðarinnar er 6.–13. janúar 2027. Flogið er til Verona og gist í einum glæsilegasta skíðabæ Ítalíu, Madonna di Campiglio.