Birgðir af heitu vatni undir öryggismörkum
Staða í birgðageymum bæjarins fyrir heitt vatn hefur verið fyrir neðan öryggismörk síðan í gærkvöld, mánudaginn 16. nóvember. Unnið hefur verið að því í dag að bæta stöðuna og heldur sú vinna áfram eins lengi og þarf. Staðan er viðkvæm og má lítið út af bregða og hvetur Norðurorka því notendur heita vatnsins til að fara sparlega með það.
Fram kemur í tilkynningu Norðurorku nú síðdegis að neyðarstjórn fyrirtækisins sé í viðbragðsstöðu vegna stöðunnar á heita vatninu. Óskað hefur verið eftir því við stórnotendur að þeir dragi úr notkun á heitu vatni eins og kostur er og til dæmis hefur verið skrúfað fyrir upphitun íþróttavalla í bænum.
Nýta olíuketil í neyð
„Við Mímisbraut er olíuketill sem er nýttur í neyð og unnið er að því að gangsetja hann. Ketillinn hitar upp bakrásarvatn og skilar því heitu inn á geymana. Markmiðið er að hann verði í gangi í sem skemmstan tíma til að lágmarka olíunotkun,“ segir einnig í tilkynningu Norðurorku.
Norðurorka er með góð ráð til almennra notenda: „Almennir notendur eru beðnir um að hugsa vel um nýtingu á heitu vatni á heimilum og vinnustöðum. Góð ráð eru að loka gluggum, draga úr innspýtingu í snjóbræðslukerfi eins og hægt er og stilla ofnakerfi á þann hátt að nýting sé sem best. Auk þess eru þeir notendur sem hafa heita potta beðnir um að láta ekki renna í þá.“
Hlýnar í veðri á laugardag