Fara í efni
Fréttir

Hagnaður Samherja 14,3 milljarðar í fyrra

Fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík. Mynd: Samherji

Rekstrarhagnaður Samherja hf. nam 9,9 milljörðum króna á árinu 2022 og jókst um rúmlega 800 milljónir kr. milli ára. Hagnaður af rekstri samstæðu Samherja hf., þegar tekið hefur verið tillit til afkomu hlutdeildarfélaga og fjármagnsliða, nam 14,3 milljörðum króna eftir skatta en var 17,8 milljarðar króna á árinu 2021.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í ársreikningi Samherja hf. fyrir árið 2022 sem samþykktur var á aðalfundi félagsins hinn 24. ágúst síðastliðinn. Samherji birti tilkynningu um þetta á vef félagsins í morgun.

Góð afkoma

„Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf., gerði grein fyrir uppgjörinu á aðalfundinum og nefndi í ræðu sinni að í heild hefði afkoman verið góð á árinu 2022. Sumt hafi gengið betur en árið á undan en annað ekki. Uppgjörið litaðist að hluta til af þeim breytingum sem hefðu orðið á efnahagsreikningi Samherja hf. á árinu en þær veigamestu fólust í því að ýmsar eignir voru færðar til félagsins Kaldbaks ehf,“ segir í tilkynningunni.

Frystitogarinn Snæfell EA 310 bættist í flotann um miðjan ágúst 2022. Skipið stundar aðallega veiðar á grálúðu. Mynd: Samherji

Nokkrar lykiltölur fyrir árið 2022 eru birtar í tilkynningunni:

  • Samherji seldi afurðir fyrir 54 milljarða króna og voru sölutekjur vegna afurða nær óbreyttar milli ára
  • Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 9,9 milljörðum króna en var 9 milljarðar króna á árinu 2021
  • Tekjur af áhrifum hlutdeildarfélaga námu 6,2 milljörðum króna en meðtalin er tekjufærsla að fjárhæð 3 milljarðar króna vegna lækkunar á eignarhluta Samherja í Síldarvinnslunni hf. úr 32,6% í 30,1%. Þá voru tekjufærðir um 1,8 milljarðar vegna sölu á eignarhlut í Samherja Holding ehf
  • Eignir Samherja hf. í árslok námu 107,7 milljörðum króna og eigið fé var 79,8 milljarðar króna
  • Eiginfjárhlutfall samstæðunnar í árslok var 74%. Eiginfjárhlutfallið hélst óbreytt milli ára og undirstrikar traustan efnahag félagsins
  • Á árinu 2022 voru að meðaltali 686 ársverk hjá samstæðunni en þau voru 807 árið 2021
  • Heildarlaunagreiðslur samstæðunnar á árinu 2022 námu samtals um 9 milljörðum króna

Framangreindar upphæðir í rekstrarreikningi eru umreiknaðar úr evrum í íslenskar krónur á meðalgengi ársins 2022 og upphæðir í efnahagsreikningi á lokagengi ársins 2022.

Góður gangur í veiðum, vinnslu og sölu

  • Á árinu 2022 gerði samstæðan út fimm ísfisktogara, eitt frystiskip og tvö uppsjávarskip. Þegar veiðiheimildir nýs fiskveiðiárs lágu fyrir í september var ljóst að bregðast þurfti við samdrætti í heimildum, einkum þorski. Því var ákveðið að leggja einu skipi tímabundið.
  • Heildarafli ísfisktogaranna dróst saman um tæp 3.200 tonn frá fyrra fiskveiðiári. Þrátt fyrir samdráttinn var unnið alla daga í fiskvinnsluhúsum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa.

Þorsteinn Már tók á móti gestum sem skoðuðu fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík á Fiskidaginn mikla fyrir skömmu.

  • Frystitogarinn Snæfell EA 310 bættist í flotann um miðjan ágúst 2022. Skipið stundar aðallega veiðar á grálúðu sem er hausuð, sporðskorin og heilfryst um borð.
  • „Skipin eru öll vel búin og sömu sögu er að segja um vinnsluhúsin. Við erum með góða samsetningu aflaheimilda og nauðsynlegt var að fara af stað með Snæfellið til að nýta sem best veiðiheimildirnar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri á aðalfundinum.
  • Unnið var úr 35 þúsund tonnum af hráefni á árinu í vinnsluhúsunum á Dalvík og Akureyri og var uppistaðan afli frá eigin skipum.
  • Uppsjávarveiðar gengu ágætlega og reyndist Vilhelm Þorsteinsson EA vel. Loðnuvertíðin var sú fyrsta hjá Vilhelm og hafði mikil áhrif á rekstur Samherja og tengdra fyrirtækja.
  • Sölufélag Samherja, Ice Fresh Seafood, seldi mun minna magn af uppsjávarafurðum en undanfarin ár. Munar þar aðallega um stríðið í Úkraínu sem braust út í febrúar 2022 og stoppaði innflutning þangað en Úkraína hefur um árabil verið mikilvægasti markaður félagsins fyrir uppsjávarafurðir.

Þekking og metnaður

„Heilt yfir var árið 2022 gott hjá Samherja eins og glögglega kemur fram í ársreikningnum. Félagið er með ýmis verkefni í gangi, svo sem uppbyggingu í fiskeldi. Góður árangur í rekstri byggist fyrst og fremst á þekkingu og metnaði starfsfólks og ég vil nota tækifærið og þakka öllu starfsfólki fyrir samstarfið á árinu,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, á aðalfundinum.

„Á þessum tímamótum er mér einnig ofarlega í huga að vel búið fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík var opið almenningi á Fiskideginum mikla fyrr í þessum mánuði. Áætlað er að um sjö þúsund manns hafi skoðað húsið, sem undirstrikar áhuga almennings á sjávarútvegi sem atvinnugrein. Ég þakka öllum sem heimsóttu okkur kærlega fyrir komuna,“ sagði Þorsteinn Már.